Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 97
BÚNAÐARRIT
95
Hrútasýningar hafa sjaldan verið haldnar í Suður-
fjarðahreppi. Það getur átt einhvern þátt i, að bændur
þar \irðast ekki hafa náð eins góðum tökum á hrúta-
valinu eins og víða annars staðar. Suðurfjarðahrepp-
ur virðist vera mikil landkostasveit og fé nær þar
niiklum þunga. Það ætti því að vera auðveldara að
rækta þar upp gott fé en annars staðar á vesturhluta
Vestfjarða.
Ketildalahreppur. Þar eru hrútar allvænir og margir
l'remur vel gerðir. Sýndir voru 28 hútar fullorðnir, sem
vógu 94.0 kg, og 12 veturgamlir, er vógu 77.9 kg að
meðaltali. Fimm hrútar fullorðnir hlutu I. verðlaun,
og vógu þeir 98.0 kg til jafnaðar. Kollur Jósefs á
Hóli var þeirra beztur, mjög vænn, þykkvaxinn og
holdmikill hrútur. Rebbi i Feigsdal og 2 synir hans,
Lágfótur og Hnifill, eru allir prýðilegar kindur, tafla
1). Bæði Rebbi og Kollur eru ættaðir frá Hvestu.
Tálknafjarðarhreppur. Sýndir voru 17 hrútar full-
orðnir og vógu þeir 94.8 kg og 14 veturgamlir, sem
vógu 74.4 kg að meðaltali. Fyrstu verðlaun hlutu 0
lirútar fullorðnir. Meðalþungi þeirra var 101.2 kg, og
eru þeir því mun þvngri en I. verðlauna hrútar i öðr-
um hreppum sýslunnar. Glæsir i'rá Eyrarlnisum, 7 vétra
gamall, har af þessum hrútum. Kindur frá Eyrarhús-
uin hafa yfirleitt gefizt vel í fjárskiptunum. Gyllir á
Sveinseyri er sömuleiðis metfés kind. Prúður og
Jökull á Kvígindisfelli eru einnig mjög vænir og vel
gerðir hrútar. Eftir lirútunum að dæma er fé í Tálkna-
firði sízt verr gert en fé i Ivetildalahreppi.
Itauðasandshreppur. Sýndir voru 42 hrútar í hreppn-
um, þar af 85 fullorðnir, er vógu 90.3 kg, og 7 vetur-
gamlir, sem vógu 78.3 kg að meðaltali. Fyrstu verðlaun
hlutu 8 hrútar, 7 fullorðnir, er vógu 97.3 kg og 1
veturgamall 81 kg.
Garpur á Melanesi var bezli hrúturinn í hreppnum,
ættaður frá Vestur-Botni. Hann er sérstaklega vel