Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 152
150
BÚNAÐARRIT
sýningunni voru Múli á Barðastöðum, Hnífill á Slit-
vindastöðum og Hnífill í Hofgörðum, allir frá Stað á
Reykjanesi. Hrútar þessir eru allir mjög vel gerðir,
hoidsamir með góða ull. Múli mun vera hvað beztur,
en hefur þó örlítið gallaðan kjaft. Fleiri hrútar frá
Stað voru ágætir, t. d. Kubbur á Kálfárvöllum og
Kolur á Ivrossum. Ófeigur í Ytri-Tungu og Bóli á
Neðra-Hóli eru báðir miklar vænleika kindur. Af
veturgömlu hrútunum voru beztir Kollur á Slitvinda-
stöðum, sonur Hnífils frá Stað, þroskamikil holda-
kind. Mjölnir á Bláfeldi og Kongsi á Neðra-Hóli eru
báðir mikluin koslum lninir og líklegir til kynbóta.
Kongsi er þó lítillega gulur á ull.
Miklaholtshreppur. Þar var sýningin mjög vel sótt.
Sýndir voru 35 hrútar fullorðnir, er vógu 85.8 kg, og
14 veturgamlir, er vógu aðeins 64.4 kg að meðaltali.
Hrútarnir voru afar misjafnir að gæðum, 20 hlutu
I. verðlaun, en 9 voru dæmdir ónothæfir, 7 af þeim
veturgamlir, sem sýnilega flestir hafa verið skemmdir
á of lélegu eldi lambsveturinn.
Beztu hrútarnir voru Gulur á Hjarðarfelli frá
Svcinseyri í Tálknafirði. Gulur er fremur smá kind,
ákaflega vel holdfylltur, einkum í mölum og lærum
og þungur eftir stærð. Hann hefur þó aðeins of stulta
bringu og varla nógu svera snoppu og hefur því ekki
nógu tilkomumikinn svip. Smári á Stakkhamri frá
Hvammi á Barðaströnd er mjög fríð og kostamikil
holdakind, en vantar þó örlítið meiri holdl'yllingu
aflast á malir og neðst á læri. Nökkvi frá Höllustöð-
um og Gauti frá Seljalandi, báðir á Hjarðarfelli, eru
mjög vel byggðir. Nökkvi ber glögg einkenni Gottorps-
fjár. Gauli hefur sérstaklega mikla bringubyggingu,
þó að hún sé ekki eins mikil og á Mjaldri Ziemsens
í Stykkishólmi. Hrani Ásgríms á Borg er vel gerð
holda- og hörkukind, en hefur of gula ull. Af öðrum
má nefna Prúð á Stakkhamri og Svart í Dal, báða