Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 154
152
BÚNAÐARRIT
hlutu I. verðlaun, allir veturgamlir, og vógu þeir 79.1
kg til jafnaðar. Göltur Sigurðar á Gilsbakka frá Múla
1 Nauteyrarhreppi bar af þeim öllum. Hann er fremur
smár, þungur, þéttvaxinn, þolslegur, farm úr skar-
andi holdgóður og hefur bæði mikla og góða, vel
hvíta ull. Lærhlettur á Gilsbakka frá Gufudal er
einnig ágætur hrútur. Varpi á sama bæ frá Fremri-
Gufudal er vænn, þolslegur og lioldmikill, en hefur
of grófa ull. Barði Torfa í Hvammi frá lcynbótabúinu
á Valdalæk var aðeins vænstur af I. verðlauna hrút-
unum í hreppnuin, jafnvaxinn, fríður og lioldgóður.
Barði er jafnbeztur af þeim hrútum, sem nú hlutu
I. verðlaun norðan varnargirðingar í Mýrasýslu.
Þvcrúvhliðarhrcppur. Þar voru sýndir 33 hrútar,
21 tvævetur og 12 veturgamlir. Af þeim lilutu 4 I.
verðlaun, en 15 voru taldir ónothæfir. Af nothæfu
hrútunum voru margir allsæmilegir, en enginn fram
úr skarandi góður. Beztur var Glókollur Bergþórs
í Höll frá Ási í Vatnsdal vænn og vel gerður tvæ-
vetlingur. Glói á Hamri er fríður og Þolslegur, en
varla nógu vænn og þykkvaxinn. Fríður í Kvíum frá
Undirfelli er vænn, en aðeins of háfættur og varla
nógu þéttholda. Dalgeir á Helgavatni frá Dalgeirs-
stöðum i Miðfirði er álitlegur hrútur veturgamall, en
varla nógu þroskamikill.
Stafholtstungnahrcppur. Þar voru sýndir 26 hrútar
tvævetrir og 25 veturgamlir. Af þeim tvævetru hlutu
2 fyrstu verðlaun og vógu 92.5 kg til jafnaðar, en
af þeim veturgömlu 4, sem vógu 79.5 kg að meðaltali.
Ónothæfir voru 20. Hrútarnir voru yfirleitt lélegir.
Beztu hrútarnir voru Gulur og Kollur Leós í Grafar-
koti, en höfðu þó varla nógu mikið hrjóstkassarými.
Spakur á Steinum frá Tjörn á Valnsnesi cr vænn og
tilkomumikill hrútur, en háfættari en skyldi. Kollur
Kristjáns á Ásbjarnarstöðum frá Þernumýri er vel
gerður hrútur.