Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 179
BÚNAÐARRIT
177
tíina. Yfirleitt var feitimagnið 3.80% sett sem lág-
marksfeitimagn, þó var í nokkrum vafasömum til-
fellum vikið frá þessari reglu. Var þá stundum farið
eftir töluin, sem fyrir lágu um nyt og feitimagn
1952, en stundum var stuðzt við tölur um afurða-
magn frá fyrri árum. Voru I. verðl. þannig vcitt
nokkrum fullorðnum kúm, enda þótt eitthvað skorti
á, að þær hefðu síðustu árin náð tilskilinni lágmarks-
nyt og feitimagni. Þessar kýr höfðu aftur á móti
sýnt góða endingu. Ef kúm hafði hlekkzt á verulega
eitthvert árið, var því ári sleppt við útreikning i
meðaltölur. Til þess að hljóta II. verðl. þurftu kýrn-
ar að hafa mjólkað 12000 fe að meðaltali 4 síðustu
árin, en 10000 fe til að fá III. verðlaun.
Tafla I sýnir þátttöku í sýningunum í hverjum
lireppi og flokkun nautgripa í verðlaun. Samkvæmt
töflunni voru alls skoðaðir og dæmdir 2064 naut-
gripir, þar af 1998 kýr og 66 naut. Af kúnum hlutu
180 I. verðl., 409 II. verðl., 551 III. verðl. og 858
engin verðlaun. Af nautunum hlutu 2 I. verðl., 41 II.
verðl. og 23 III. eða engin verðlaun. Af þessu sést,
að tiltölulega margar kýr lilutu engin verðlaun.
Fyrir því liggja ýmsar ástæður. Sums staðar voru
skoðaðar kýr, sem engar afurðaskýrslur voru til
yfir og komust því ekki í verðíaun. Vegna heim-
sókna á mjög marga bæi voru oft skoðaðar allar
kýr þar, en engar á öðrum bæjum. Af því leiddi, að
tiltölulega margar lélegar kýr voru skoðaðar, en yfir-
leitt fara menn með beztu kýrnar á sýningastaði.
Margar 1. kálfs kvígur voru skoðaðar, enda þótt
þær fengju ekki verðlaun að sinni. Nálægt því 3.
hvert naut, sem skoðað var, hlaut III. verðlaun eða
engin. Yfirleitt voru naut jjessi undan óvöldum for-
eldrum, sérstaklega í þeim sveitum, sem engin naut-
griparæktarfélög starfa i.
12