Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 190
188
BÚNAÐARRIT
en nokkrar voru 1. kálfs kvígur, sem engin verðlaun
hlutu. Tvær þessara kúa voru hyrndar. Helztu sam-
eiginleg byggingareinkenni dætra hans eru þau, að
yfirlínan er fremur ójöfn, júgrið stórt og það, að
gott er að mjólka þær. Ein þessara kúa var lek.
Afurðaskýrslur voru til yfir 11 dætur Skjaldar Reyk-
dals 132 fyrsta heila skýrsluárið (1950). Sýndu þær,
að þessar 11 kvígur lcomust á ])vi ári hæst á dag í
16.6 kg að jafnaði (frá 11.5 kg í 20.5 kg). Mjólkuðu
þær það ár 2535 kg að meðaltali mcð 3.87% feitri
mjólk eða 9813 fe. Aðrar 11 kvígur undan honum,
sem borið höfðu að fyrsta kálfi einhvern tímann á
árinu 1951, komust hæst á dag í 14.1 kg að mcðal-
tali. Meðalfeitimagn mjólkurinnar úr þeim þann hluta
af árinu 1951, sem þær voru á skýrslu, reyndist
vera 3.67%. Al' þessu sést, að dætur Skjaldar Reyk-
dals 132 komast í liáa nyt eftir hurð og mjólkin úr
þeim er yfir meðallag að feitimagni. Spáir þetta hvort
tveggja góðu um kynhótagildi hans, og hlaut hann
því I. vcrðlaun. Skjöldur Reykdal 132 hefur verið
notaður í Svarfaðardal upp á síðkastið, en þaðan
hefur ekki mátt flytja hann lil kynbótastöðvarinnar
á Grísabóli vegna sauðfjárveikivarnanna.
Af nautum, sem fengu II. verðlaun, höfðu 3 aldur
til að fá I. verðlaun. Þessi naut voru:
1. Kolnr 127 (N2 í töflu II), eign Nf. Svarfdæla.
Undan honum voru sýndar mjög fáar kýr, enda fátt
til undan honum. Var því ekki hægt að styðjast við
skýrslur yfir afurðir dætra hans. Kolur 127 hlaut
einnig II. verðlaun á nautgripasýningu 1948 (sjá
Búnaðarrit 1950, 21. naut í sýningaskrá).
2. Viga-Skúta 130 (N4 i töflu II), cign S. N. E.
(sjá Búnaðarrit 1950, 13. naut í sýningaskrá; sama
rit 1952, bls. 314—315). Eins og sést í tilvitnuðum
heimildum, er þetta naut mjög vel ættað. Faðir þess
var Suðri 128, sem notaður var í Mývatnssveit (sjá