Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 206
204
BÚNAÐARRIT
afurðaskýrslur urðu að vera til í minnst tvö ár. I
þessum flokki eru margar ágætar kýr, en sumar liafa
verið á skýrslu í stuttan tíma eða þá, að nægilega
margar fitumælingar hafa ekki verið gerðar síðustu
árin. Þá eru í þessum hóp ýmsar fullorðnar kýr,
sem hafa ekki mjólkað nógu feitri mjóllc síðustu
árin og enn fremur nokkrar álitlegar ungar kýr. En
þar eru einnig kýr, sem þrátt fyrir ágæt afköst liafa
einhvern byggingarlýti, þótt ekki sé á mjög háu sligi.
Fyrstu verðl. af 3. gr. hlutu 52 kýr.
í I. verðl. af 4. gr. lenda allar þær I. verðl. kýr,
sem af einni eða fleiri ástæðum komust ekki í æðri
flokkana, enda þólt réttmætt þætti að gefa þeini I.
verðlaun. Þessar kýr eru mjög misjafnar að gæðum
og byggingu. Afurðaskýrslur yi'ir nythæð og fitu-
magn eru aðeins til í eitt ár fyrir sumar þessara
kúa. Einnig skortir nokkuð á í sumum tilfellum, að
kýrnar i þessum flokki liafi náð tilskildum lágmarks-
afurðuin síðustu árin. Þá eru þar einnig ltýr, sein
eftir atvikum þótti ástæða til að veita I. verðl., enda
þótt feitimagn mjólkurinnar væri fremur lágt síðustu
árin. Allmargar kýrnar eru gallaðar að byggingu,
t. d. með gallað júgurlag og spena, fremur fast-
mjólka kýr, og kýr, sem grunur lék á að væru lekar,
enda þótt þær hefðu sýnt mjög mikil afköst og væru
því eigulegir gripir. Við nautaval ætti að athuga ná-
kvæmlega kosti og galla allra kúnna af 3. og 4. gráðu,
áður en naut eru sett á undan þeim, j)ví að sumar
kýrnar í þcssum flokki eru engan veginn vel fallnar
nautamæður, j)ótt þær séu góðir einstaklingar. Alls
hlutu 77 kýr I. verðl. af 4. gráðu.
Ein kýr keppti um I. heiðursverðlaun fyrir af-
kvæmi. Var það Hreina 6, eign Kristins Jakobssonar,
bónda á Espihóli í Hrafnagilshreppi. Hreina hlaut
heiðursverðlaunin með miklum sóma. Með Hreinu 6
voru sýndar 6 dætur hennar. Hlulu 4 þeirra I. verð-