Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 209
BÚNAÐARRIT
207
4.14% feiti eða 13841 fe. Sýnir þetta vel kynbótagildi
hennar, þar sem engar dæturnar eru alsystur.
Um sýningarnar í einstökum hrepþ'um og nautgripa-
ræktarstarfsemina á sýningasvæðinu mætti margt
skrifa. Hér verður þó ekki freistað þess að gera því
efni ýtarleg sk.il. Veldur því m. a. ókunnugleiki á
þeim breytingum, sem orðið hafa á nautgripakyninu
norðanlands, síðan sýning var. haldin þar 1948. Að
vísu mætti rannsaka í sumum tilfellum, hvaða áhrif
einstök naut hafa haft á kynið, og enn fremur mætti
vjnna frekar úr útlitsdómum kúnna, þar sem hverri
kú, sem dæmd var, voru gefnar 12 einkunnir (4 hálf-
ar og 8 heilar) fyrir einstök byggingareinkenni. Slík-
ar athuganir eru samt sem áður seinlegar, og vinnst
ekki tími lil þeirra við þær aðstæður, sem fyrir
hendi eru. Rétt þykir þó að minnast litið eitt á
sýningarnar í hverju héraði. Við þá athugun er æski-
legt að hafa hliðsjón af töflu I, sem sýnir þátttöku
og verðlaun á hverjum stað.
Húnavatnssýsla. Aðeins eitt nautgriparæktarlelag
er starfandi í sýslunni, Nf. Sveinsstaðahrepps. Til-
tölulega fáir bændur eru í félaginu, en ])eir halda
fast saman, og hefur félagið starfað óslitið síðan
1930. Leggja þarf áherzlu á að efla feitimagn mjólk-
urinnar í félaginu. í Ásahreppi var óskað eftir sýn-
ingu, og voru skoðaðar þar kýr á fimm bæjum af
handahófi, og fengu kýr þar yfirleitt fremur góðan
útlitsdóm. Annars varð tiltölulega lítið gagn að sýn-
ingunni, þar sem ekki var hægt að ná niönnum
saman og ræða við þá. Engar afurðaskýrslur lágu
fyrir, og var engum verðlaunum úthlutað.
Húnvetningar ])urfa að gera stórt átak í nautgripa-
rækt. Kýr i Húnavatnssýslu eru mjög feitilágar að
jafnaði, og ætti að vcra hægt að bæta úr því á til-
tölulega skömmum tíma með réttu nautavali. Virðist
ekki ríkja sá félagsandi í húljárræktarmálum þar nú