Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 212
210
BÚNAÐARRIT
manns og Ivára Þorsteinssona á Þverá í Öxnadal, en
6 kýr þeirra bræðra lilutu I. verðlaun. Fallegasta og
jafnframt afurðamesta kýrin þar er Baula 6 á Þverá.
Hún er einkar hlutfallsgóð kýr og hefur mjög vel
þroskað framjúgur, sem er óalgengt á íslenzkum
kúm. Augljóst var, að kýrnar á Þverá eru vel upp-
aldar og vel fóðraðar. Af 7 kúm, sem I. verðlaun
hlutu í Arnarneshreppi, voru 4 undan Skugga frá
Jódísarstöðum.
í Hrafnagilshreppi voru skoðaðar 124 kýr. Af þeim
hlutu 24 I. verðlaun eða sem næst 5. hver sýnd kýr.
Kýr í hreppnum flokkuðust mjög vel í verðlaun,
enda eru þar margar úrvalskýr og ræktunarsvipur
á gripunum. Mesta eftirtekt vakti kúabú Kristins
Jakobssonar á Espihóli. Eina kýrin, sem heiðursverð-
laun hlaut á sýningunum, var Hreina 6 á Espihóli
(sjá bls. 204—207).
í Saurbæjarhreppi voru skoðaðar 141 kýr, en það
er sá hreppur, sem flestar kýr eru í á landinu. Þar
komust 14 kýr i I. verðl. eða 10. hver sýnd kýr. Kýr
í Saurbæjarhreppi eru sundurleitari en í Hrafna-
gilshreppi. Veldur því meðal annars lega sveitarinn-
ar, sem torveldað hefur sameiginlega notkun nauta.
Spena- og júgurgallar eru fremur algengir á kúm í
hreppnum. I Saurbæjarhreppi var úthlutað farand-
grip, horni, þeiin bónda, sem að áliti dómnefndar
sýndi álitlegastan kúahóp á sýningunni. Hornið
hlaut að þessu sinni Jón bóndi Hjálinarsson i
Villingadal.
I Öngulstaöahrcppi voru dæmdar 236 kýr, en það
var hæsta tala sýndra kúa í einum hreppi á sýninga-
ferðalaginu. í I. verðl. komst 21 kýr, sem er meir en
helmingi færri en þær, sem I. verðl. hlutu á sýning-
unni 1948. Hins vegar komust mjög margar kýr í
II. verðl. (78) og III (73). Vantaði lílið meir en
herzlumuninn, að mun fleiri kýr kæmust í I. verð-