Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 213
BtJNAÐARRIT
211
laun. í Öngulstaðahreppi eru kýr einna samstæð-
astar í Eyjafirði, og bera þær allmikinn svip rækt-
unar, enda hefur lengi verið unnið að kynbótúm í
hreppnum.
í Svalbarðsstrandarhreppi fengu 9 kýr I. verðl. að
þessu sinni af 70 sýndum kúm, en tiltölulega margar
hlutu II. og III. verðlaun. Nf. Svalbarðsstrandar-
hrepps er í S. N. E., enda þótt hreppurinn sé í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Á starfsvæði Skafta Benediktssonar í S.-Þingeyjar-
sgslu var ég á sýningum frá 24.—30. júní. Á þessu
svæði voru stofnuð 6 nautgriparæktarfélög á árunum
1929—1931, og hafa þau öll starfað óslitið síðan,
nema í Reykdælahreppi, þar sem nokkurt los komst
á starfsemina um tíma, þótt hún hafi nú eflzt aftur
eins og annars staðar við það, að héraðsráðunautur
var ráðinn til að hafa umsjón og leiðbciningar á
hendi. í Aðaldælahreppi var félag stofnað árið 1922
og starfaði það lil ársins 1946. Árið 1950 tók svo
búnaðarfélag hreppsins starfsemina í sínar hcndur
og hefur henni verið haldið uppi síðan. Mörg vel
valin naut eru nú á svæðinu, og er þess að vænta,
að þau bæti kynið á næstu árum.
í Hálshreppi og Ljósavatnshreppi hlutu 10 kýr I.
verðl. i hvorum hreppi, en 15 í Bárðdælahreppi. í
Ljósavatnshrcppi eru kýr fremur ósamstæðar. I
Hálshreppi og Bárðdælahreppi skorti mikið á, að
nægilega margar fitumælingar hefðu verið fram-
kvæmdar undanfarin ár, og þarf að bæta úr því hið
bráðasta. Bárðdælir eiga til margar ágætar kýr. Engin
af I. verðl. kúnum hlaut þó 1. gráðu vegna þess, að
nægilega margar fitumælingar skorti. Sá stofn, sem
er lil í Bárðardalnum, þarf að varðvcitast. í honum
eru margar virkjamiklar og afurðagóðar kýr.
í Reykjahreppi hlutu 3 kýr I. verðlaun af 21, sem
sýndar voru, en 5 í Aðaldælahrcppi og 1 í Reykdæla-