Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 242
240
BÚNAÐARRIT
Árni Pétursson hefur og hætt hjá Búnaðarsam-
bandi Austurlands, þar sem hann var settur kennari
við Hólaskóla frá 1. okt. í haust að telja. Hann vinn-
ur þó að skýrsluuppgjöri á mælingunum frá í sumar,
samhliða kennslunni á Hólum, og telst ráðinn hjá
Sambandinu til 1. jan. 1953. Ekki mun ráðgert að
taka mann í hans stað fyrr en með vorinu.
Á sviði búfíárræktarinnar starfa sömu menn hjá
búnaðarsamböndunum eða nautgriparæktarsambönd-
unum og áður, nema Ólafur E. Stefánsson, er tók
við slarfi hjá Búnaðarfélagi Islands, en í stað hans
tók Pétur K. Hjáhnsson við ráðunautarstarfi í hú-
fjárrækt og forstöðu kynbótastöðvarinnar að Lága-
felli hjá Búnaðarsambandi Kjalarnesþings.
Á árinu gerðust 296 menn ævifélagar í Búnaðar-
félagi íslands, og eru það mun fleiri en nokkru sinni
áður á einu ári.
Fræðslustarfsemin.
Fræðslustarfsemi félagsins er margþætt sem áður.
Má þar fyrst minna á, að mikill hluti af starfi allra
ráðunautanna er fræðslustarf í eðli sínu, þótt það ef
til vill sé ekki kallað svo.
Það koma menn til þeirra á skrifstofuna til að
spyrja þá um þetta og hitt, þ. e. að fræðast. Þeir vilja
vita, hvort líkur séu til þess, að betur reynist kálfar
undan þessu nauli eða liinu eða um ættir ákveðinna
kúa og undan hverri þeirra þeir eigi helzt að láta
lifa o. s. frv. Og þeir vilja vita um samanburð á
ákveðnum hrútum í fjárræktarfélagi, lambaþunga
o. s. frv. Enn aðrir vilja vita, af liverju það hafi
komið, að hluti af lúni hans spratt að honum fannst
illa o. s. frv. Allflestir, sem koma í skrifstofurnar,
eru að leita sér fræðslu, og hvað upp af þeim fræjum
sprettur, sem þar cr sáð, veit enginn.