Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 251
BÚNAÐARRIT
249
á eflir að koma þaðan í framtíðinni margt ungra
raanna, sem gera skólanum og sér sóma með starfi
sínu, og sveitunum, sem þeir koma til með að starfa
í, mikið gagn.
ForÖagæzlan. Yfirumsjón forðagæzlunnar hefur
verið falin B. í. Það sendi því í lianst út eyðublöð
undir skoðun snemma vetrar, og liafa nú nálægt %
lilular hreppanna sent þau aftur að skoðun lokinni.
Kemur af þeim í ljós, að sums staðar hefur engin
skoðun farið fram undanfarin ár, og þess eru dæmi,
að nú var skoðað í fyrsta sinn. Öllum þeim, er
skýrslur hafa sent, hefur verið svarað og þeim sagt,
ef áselningur hefur þótt sérstaldega varliugaverður.
Hafa a. m. k. þrír hreppar tekið slíkar athugasemdir
til greina og gert ýmist að fækka á fóðrum eða út-
vega sér viðbótarfóður eða hvort tveggja. Að öðru
leyti er vikið að ásetningnum fyrr í skýrslu þessari,
og þykir ekki ástæða til að ræða það frekar að sinni.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessa skýrslu lengri,
en vil þakka öllum fyrir gott samslarf á liðna árinu
og þó sérstaldega samstarfsmönnum mínum og stjórn
B. !. og vil mega vona, að það megi haldast á kom-
andi ári, og þá megi heppnast hvort tveggja, að
þoka fram á við þróun landbúnaðarmálanna og þó
sérstaklega ræktun landsins, sem er undirstaða þess,
að bændur hafi nægt fóður handa búfénu og geti
farið svo mcð skepnur sínar, að þær sýni fullan
arð. En undir því er fjárhagsafkoman að miklu
leyti komin.
Megi okkur öllum, er að landbúnaðinum vinnum,
takast að verða samtaka um átök í þá átt.
Gleðilegt og gott starfsár.
Reykjavik, 4. janúar 1953.
Páll Zóphóniasson.