Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 274
272
BTJNAÐARRIT
sjóði til handa 10 héraðsráðunautum í jarðrækt. Þó
eru enn til sambandssvæði, sem engan ráðunaut
hafa. Og heyrt hef ég þvi fleygt, að 1 samband eða
jafnvel 2 séu í vandræðum með að finna verkefni
fyrir héraðsráðunauta sína.
Sú var tíðin, að íslenzkur bóndi hafði ráð á að
lialda 4 til 6 vinnumenn (ársmenn) auk annarra
hjúa. Nú telja mörg hundruð bændur á einstökum
sambandssvæðum sig ekki liafa ráð á að halda sam-
eiginlega 1 vinnumann (ráðunaut, hvað þá 2 til 3)
til að leiðbeina sér um landbúnaðarframkvæmdir, og
er það að vonum, ef þeir ern í vandræðum með að
finna ráðunautnum nóg starf.
Að sjálfsögðu fer það eftir atvikum, hversu afnot
ráðunauta verða mikil. Þeir eru misjafnlega starfi
sínu vaxnir sem aðrir menn. En þótt einstakur ráðu-
nautur verði léttvægur fundinn, þá er ráðunauta-
starfsemin eigi að síður jafn réttmæt, því að maður
kemur í manns stað. Óhæfur víkur fyrir hæfum. —
Vissulega getur komið fyrir liversu færan ráðunaut
scm er að fara villur vegar og valda með því tjóni.
Slíkt mun gcta hent l'Iesta menn í hvaða starfi sem
er. En hitt mun tíðara, að ráðhollir kunnáttumenn
veiti ráð eða gefi upplýsingar, sem eru mikils virði,
enda er það undirstaða framþróunar og velmegunar
hvers þjóðfélags.
Þrátt fyrir fágætan umbótahraða á síðustu árum,
eða ef til vill einmitt vegna hans, þá stendur nýsköp-
un liins islenzka landbúnaðar á gelgjuskeiði. En
einmitt þess vegna og af því að jafnframt gengur
yfir l)yltingartímabil, þá er þörfin nú brýnust fyrir
skelegga ráðunautastarfsemi. En þó að starfandi væru
10 héraðsráðunautar í jarðrækt, eins og jarðræktar-
lögin gera ráð fyrir, auk ráðunauta Búnaðarfélags
íslands, þá væru það ekki nægir starfskraftar til að
fullnægja þörfinni, eins og hún er nú. Ég hygg, að