Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 284
282
BtJNAÐARRIT
una (filmusjóð) um að hefja framleiðslu kvikmynda
frá íslenzkum landbúnaði. Fyrir tilmæli stjórnar
Búnaðarfélagsins tók ég að mér, í samráði við búnaðar-
málastjóra, að annast starf þetta fyrir félagsins hönd.
Er þetta hinn fyrsti vísir að miklu starfi, sem fyrir
liggur á þessum vettvangi. Var ákveðið, að fyrsta
verkefni, sem til meðferðar yrði tekið, skyldi vera
„nýtizku búskapur í kring um árið 1950“. Var að þessu
unnið fram undir vetur, en auk þess voru fjárskiptin
í haust kvikmynduð til þess að staðfesta þannig at-
burði hinna umfangsmestu fjárskipta, sem fram-
kvæmd hafa verið hér á landi.
9. önnur störf.
Störf mín hafa á ýmsum tímum krafizt þess, að ég
væri allmikið að heiman; einkum er kvikmyndun og
undirbúningur hennar þess eðlis, að framkvæmdir
verða mestar utan Reykjavíkur. í marzmánuði fór ég
í Skógaskóla, flutti þar erindi og sýndi kvikmyndir.
í nóvember var ég á bændafundum norðanlands, ásamt
Einari Eyfells, flutti erindi og sýndi myndir á Hólum
í Hjaltadal, Varmahlíð, Löngumýri, Ásbyrgi, Borgum
í Bæjarhreppi, Borðeyri og Reykjaskóla. Á fundum
þessum mættu samtals 810 manns.
Hinn 20. júní fór ég utan og ferðaðist um Suður-
England, Holland og Belgíu, um Þýzlcaland til Dan-
merkur, Svíþjóðar og Noregs. Heimsótti ég í för þessari
„RoyaI-Show“ í Devonshire, ýmis bændabýli í um-
ræddum löndum, kynbótastöðvar og fleiri starfs-
stöðvar landbúnaðarins. Þá sat ég alþjóðaráðstefnu
búfjárræktarmanna í Kaupmannahöfn. Úr þessari för
kom ég heim seint í júlí.
Nokkuð hef ég Ijósmyndað og aukið myndasafn
Búnaðarfélagsins.
Að lieiman lief ég verið á árinu 62 daga samtals.