Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 286
284
BÚNAÐARRIT
En 3. júní lagði ég upp að heiman norður í Skaga-
fjörð til að ganga frá byggðarsafninu í Glaumbæ til
opnunar. Hef ég sagt nánar frá því í grein í jóla-
blaði Freys og get því að mestu vísað til hennar,
þcim sem meira vilja vita um þann stað. En enda
þótt Byggðarsafni Skagfirðinga hafi þokað þetta
áfram, er þar margt ógert, því að bærinn er stór
um sig og enn vantar mikið til hans, sem þyrfti að
fá þangað sem fyrst. Aðsókn að safninu þetta fyrsta
sumar tel ég fremri vonum, þar sem rúmlega 2
þúsund manns greiddu aðgangseyri.
Frá Glaumbæ kom ég heim síðast í júní. Dvöl
mín í Glaumbæ var þó ekki óslitin, þar sem ég, 12.—
18. júlí, var fararstjóri í bændaför Vestur-Húnvetn-
inga. Voru þátttakendur á áttunda tug, og farið var
frá Hvammstanga um Suðurland austur á Síðu í
Vestur-Skaftafellssýslu. Höfðum við Páll Zóphónías-
son, búnaðarmálastjóri, undirbúið förina, og gekk
hún að öllu leyti samkvæmt áætlun og mun að dómi
allra þátttakenda hafa heppnazt prýðis vel. Er það
auðvitað fyrst og fremst því að þakka, að veðrið var
eindæma gott, svo að varla sá ský á himni. Þessi
ferð var mér enn ein sönnun fyrir þýðingu þessara
ferðalaga bændafólksins um fjarlæg héruð, þau auka
samliug bændastéttarinnar um gjörvallt landið. Það
heyrast stundum raddir um, að þctta séu nú „bara
skemmtiferðir" og lítinn lærdóm upp úr þeim að
hafa. Þá væri fcrðin misheppnuð, ef fólkið ekki
skemmti sér, og mikinn fróðleik gctur athugull mað-
ur upp úr þeim haft um landið, húskapinn og þjóð-
ina. Auk þess hafa margir, sem þátt taka i bænda-
ferðum þessum, ekki gert viðreist um dagana áður.
Aðeins þessi eina bændaför var farin þetta sumar á
vegum Búnaðarfélags íslands.
Fyrri hluta júlimánaðar fór ég að Borg á Mýrum
og Staðarfelli og Hvammi í Dalasýslu til að gefa ráð-