Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 313
B Ú N A Ð A R R I T
311
mjólkurinagnið sums staðar vegna meiri umhugs-
unar og natni við framleiðsluna. Tölur eftirlitsins
verða ekki rengdar, og gefur þetta til kynna, að
sltýrsluhaldið sé samvizkusamlega af hendi leyst, eins
og athuganir annars staðar benda einnig til. Ætlunin
er að halda eftirlitsstarfinu áfram á Suðurlandi, enda
þótt það sé kostnaðarsamt. Líklegt er, að helzt verði
þau bú valin til eftirlits, sein sótzt er eftir lífkálfum
frá. Þá verða fremur stór hú valin að öðru jöfnu.
Stefna ber að því að gera eftirlitið hvarvetna á
landinu eins öflugt og auðið er. Með því er hægt að
eyða tortryggni, sem stundum á sér stað. Auk þess
hefur eftirlitið gildi, bæði fyrir þá, sem selja gripi
til lífs, og hina, sem gripina ltaupa.
Nautgriparæktarmál rædd. Allir héraðsráðunautar
í húfjárrækt komu til fundar við ráðunauta Bf. ísl.
í þessum greinum um mánaðamótin nóv.—des. í
umræðunum um nautgriparækt kom fram m. a. áhugi
manna á að auka eflirlitið, stuðla að því, að afkvæma-
sýningar á nautum verði haldnar 2. hvert ár, fitu-
mælingum verði fjölgað og tilraunastarfsemin verði
aukin til muna. En það háir mjög allri upplýsinga-
og fræðslustarfsemi í nautgriparækt, hve mjög skortir
innlendar tilraunaniðurstöður. Þá áleit fundurinn, að
varast bæri að stefna að ótakmarltaðri stækkun ís-
lenzkra nautgripa. Allmikið var rætt um fyrirkomu-
lag skýrslueyðublaða og spjaldslcráa. Að fundinum
varð hið mesta gagn, og ættu slíkir fundir að verða
til þess að auka samstarfið milli héraðsráðunautanna
og Bf. ísl. og skapa umræður um þau vandamál,
sem mest eru aðkallandi á hverjum tíma.
Skráning nauta. Sú fábreytni í nafngiftum nauta,
sem verið hefur liér á landi, skapar mikla erfiðleika
og oft óvissu í ættfærslu. Stundum eru fleiri en eitt
naut með saina nafni innan sama félags á sama tíma.
Enn fremur er algengt, að naut eru látin heita eftir