Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 314
312
BÚNAÐARRIT
feðrum sínum eða öðrum nautum, sem skönnnu
áður hafa verið notuð á sama svæði. Til þess að
komast lijá nær óhjákvæmilegum ruglingi i þessu
efni, verður nú tekin upp sú regla að auðkenna með
einkennisbókstaf og númeri nafn hvers nauts, sem
I. eða II. verðlaun hlýtur á nautgripasýningum eða
fá sams konar viðurkenningu milli sýninga.
Sem byrjun og undirstaða að skráningunni verður
notuð tafla sú, sem birtist í Búnaðarriti 1952 yfir
þau naut, sem Hjalti Gestsson, ráðunautur, veitti I.
og II. verðlaun á sýningum á Suðurlandi það ár. Not-
aðir verða fjórir bókstafir auk tölustafa við nöfn
nautanna, sinn bókstafurinn fyrir hvern landsfjórð-
ung. Bókstafirnir verða þessir:
S fyrir Suðurland frá Skeiðará að Hvalfirði,
V fyrir Vesturland frá Hvalfirði að Hrútal'irði,
N fyrir Norðurland frá Hrútafirði að Brekknaheiði,
A fyrir Austurland frá Brckknaheiði að Skeiðará.
Dæmi: Víðkunnur S34 merkir, að Víðkunnur er
34. skrásetta nautið á Suðurlandi frá þeim tíma, að
liyrjað er að skrásetja naui með áframhaldandi núm-
erum á því svæði. Um Víðkunn S34 sjá Búnaðar-
ritið 1952, bls. 253.
Félagskerfi nautgriparæktarinnar og útbreiðslu-
starfsemin. í landinu eru starfandi þessi nautgripa-
ræktarsainbönd: Nautgriparæktarsamband Rangár-
valla- og V.-Skaftafellssýslu, Nautgriparæktarsam-
band Árnessýslu, Samband nautgriparæktarfélaga Borg-
arfjarðar, Samband nautgriparæktarfélaga Eyjafjarð-
ar. Auk þess hafa þessi búnaðarsambönd lálið naut-
griparæktina til sin taka, og sjá þau um leiðbeininga-
starfsemi á félagslegum grundvelli: Búnaðarsambaiul
lýjalarnesþings, Búnaðarsamband Skagfirðinga og Bún-
aðarsamband Suður-Þingeyinga.