Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Page 10

Morgunn - 01.04.1920, Page 10
4 MORGl'NN muninn finnum við, sem gátum orðið ekki haft not af kyndlunum, en sátum í svartnætti efnishyggjunnar. Og um eitt skeið fór liópur þeirra manna dagvaxandi, sem \onlegt var: Alt benti á, að einskis nýs dags væri að vænta. En þá kom dagrenningin. En þegar þessarri aðalspurningu — »Lifir vitundin eftir dauða likamans?« — er svarað játandi, fer svo, sem ætíð þegar nýr sannleikur kemur í ljós, að ótal nýjar spurmngar og ráðgátur blasa við. Að sumum þeirra.löð- umst við fyrir vísindalega forvitni einkum, en að öðrum einnig vegna þess, að þær snerta mjög hag vorn, nú eða síðar — og meðal þeirra er þessi spurning, sem eg ætla nú að fara nokkrum orðum um: Hvernig er öðru lífi háttað? Segir hin nýja þekking okkur nokkuð um það? Já, hún svarar okkur á ýrasa lund, bæði óbeinlínis og beinlinis. Að vísu eru þau svör ekki þannig vaxin, a. m. k. ekki í smáatriðum, að ráðlegt sé að sjóða upp úr þeitn nokkra trúarjátningu eða semja nokkra landa- f'ræði annars heims, enn sem komið er. En menn eru að vonum forvitnir um þessa hluti, og fregnir þær, sem þykj- ast koma handan yfir, um ástandið þar, eru oft og einatt þann veg fratn fiuttar — af verum, sem reynst bafa sann- orðar um þá hluti, sem við náum til, — a.ð þær eiga heimtingu á nákvæmri, óhlutdrægri rannsókn og athugun og geta að vissu leyti gert tilkall til þess, að trúnaður sé á þær lagður, svo langt sem þær ná. En enginn skyldi hyggja, að þær gefi annað eða meira, en takmarkaða reynslu fárra einstaklinga, i’ram setta i orðatiltækjum, sem löguð eru eftir skilningi okkar, eða að þær leiði okkur inn í dýpstu leyndardóma tilverunnar. Fyrir handan þau tilverustig, sem við náum nokkru almenuu sambandi við, oru sennilega djúp á bak við djújj, sem ekkert mannlegt auga hefir litið, né mannlegt eyra numið neina hljóma frá.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.