Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Side 83

Morgunn - 01.04.1920, Side 83
M 0 RGrUNN 77 svo vel að segja aldrei ei'tirleiðis, að þetta sé djöfullegt mál. Munið eftir því, að það er himneskt*. Kirkjuhöfð- inginn svaraði bréfinu engu. Kirkjuþing það, sem getið er um hér að framan, var háð í siðastliðnum októbermánuði. Þar gerðist það merki- legast, að þingið setti spíritismann á dagskrá og tók hann til umræðu. Að minsta kosti hefir enskum blöðum þótt það langsögulegast af gerðum þingsins. Engir af þeim prestum ensku kirkjunnar, sem látið liafa uppi afdráttar- laust fylgi við spíritismann og að sjálfsögðu hafa mesta þekking á lionum, voru fengnir til að halda ræður, og að því hefir verið fundið. Samt voru þar ýms ummæli vingjarnleg í spíritismans garð — innan um ofstækistal og ógeðslega endileysu frá öðrum. Merkasta atriðið kom fram í umræðulokin. Þá lýsti æðsti maður biskupakirkjunnar, erkibiskupinn í Kantara- borg, yfir því, að hann ætlaði að sjá um að rnálið yrði vandlega rannsakað, að í rannsóknarnefndinni skyldu verða ágætismenn, karlar og konur, sem hugsað hefðu um málið, menn sem hefðu þekkingu á því og reynslu af því, og að niðurstaða nefndarinnar mundi verða lögð fyrir biskupafund, sem haldinn yrði í Lundúnum á næsta ári. Sá fundur mundi þá taka rnálið til íhugunar Misjafnlega hafa þessar gjörðir þingsins mælst fyrir, eins og við var að búast. Auðvitað dylst engum það, að þessi ályktun erkibiskupsins stafar af því, að spíritisminn á Englandi er orðinn uinsvifameiri og hefir náð meiri tök- um á hugum manna. en svo, að það sé heillavænlegt fyrir kirkjuna að láta annaðhvort við það sitja að begja um hann, eins og hann væri enginn til, eða svívirða liann í algerðu skilningsleysi ofstækisins. Og i augum margra manna er þessi ályktun erkibiskups að sjálfsögðu vottur um vitsmuni hans og hyggindi. Eitt tímaritið, sem vér höfum séð og minnist ítarlega á málið, segir, að aðrar

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.