Morgunn - 01.06.1949, Side 7
Sálarrannsóknafélag íslands
30 ára.
Vegna þrjátíu ára afmælis Sálarrannsóknafélags íslands
í des s.l. var haldið fjölmennt samsæti í Sjálfstæðishúsinu
í Reykjavík. 1 fjarveru forseta stýrði varaforseti félagsins,
hr. Sveinn Víkingur, skrifstofustj., samsætinu, og flutti
minningarerindi um próf. Harald Nielsson, sem um þetta
leyti hefði átt áttræðisafmæli. Frú Soffía Haraldsdóttir
flutti erindi frá forseta. Ávarp barst frá séra Kristni Dan-
íelssyni, sem sakir sjúkleika gat ekki sótt samkomuna.
Frú Edda Kvaran, leikkona, las upp sögubrot eftir Einar
H. Kvaran og frú Nanna Egilsdóttir, óperusöngkona, söng
nokkur lög með undirleik dr. V. Urbantsitsch.
MORGNI þótti hlýða að flytja lesendum sínum erindin,
sem flutt voru í samkvæminu, og kveðju séra Kristins
Daníelssonar.
S. R. F. í. ÞRJÁTÍU ÁRA.
Kæru áheyrendur, gestir og félagar.
Fyrsti félagsskapurinn, sem utan um málefni sálar-
rannsóknanna var stofnaður hér á landi, var Tilrauna-
félagið, fámennur hópur, sem stóð að tilraunum og rann-
sóknum með Indriða heitinn Indriðason miðil. Saga þess
Verður hér ekki sögð, og því miður var hún ekki skrásett
af þeim, sem höfðu bezta aðstöðu til þess. En þegar Indriði
féll frá og hinna stórfelldu hæfileika hans varð ekki notið