Morgunn - 01.06.1949, Side 36
30
MORGUNN
og önnur hliðstæð stóð allmikill styr eins og kunnugt er.
„Ég veit, að þau eru sönnuð, óvefengjanleg staðreynd,“
segir hinn heimskunni sálarrannsóknamaður Hereward
Carrington í bók sinni „The Psychic World.“ Og hann
bætir við: „Ég hefi átt kost á að athuga og rannsaka
fjölda slíkra fyrirbrigða hjá Eusapia Palladino, er gerðust
í góðri birtu. Ýtrustu varúðarráðstafanir voru um hönd
hafðar, sem tryggðu fullkomlega að engum brögðum eða
blekkingum var unnt að koma við. Gagnrýni- og afsann-
anatilraunir þeirra manna, sem Íítt eða ekki hafa kynnt
sér þessi mál, fá ekki haggað sannfæringu minni um
áreiðanleik þeirra. Þeir, sem þau hafa rannsakað með
samvizkusemi,aðeins með það eitt í huga, að leita sann-
leikans, hafa orðið að beygja sig fyrir þunga sannananna
og viðurkenna að þau gerist, hve andstæð sem útkoman
virtist viðurkenndum lögmálum eðlisfræðivísindanna. Og
ég get bætt því við, að ég er sannfærður um, að jafngóð
og rammlega sönnuð fyrirbrigði þessarar tegundar, hafa
gerzt hjá mörgum öðrum miðlum.“ Þannig farast orð hin-
um nafnkunna sálarrannsóknamanni, en hann nýtur hins
mesta trausts fyrir rannsóknir sínar og fræðimennsku.
Þó ég hafi ekki átt þess kost, að taka þátt í rannsóknum
á umræddum fyrirbrigðum í viðurvist frægra rannsókna-
manna né með þeim ráðstöfunum, sem einkennt hafa
rannsóknir þeirra, hef ég nokkrum sinnum verið sjónar-
vottur að sumum slíkra fyrirbrigða, og átt kost á að at-
huga þau við einkar hentug skilyrði. 1 erindi, er ég flutti
hér í Sálarrannsóknafélaginu fyrir allmörgum árum, og
prentað í 4. árg. Morguns 1923, minntist ég aðeins á fyrir-
brigði þessarar tegundar, er gerðust á heimili Sig. H.
Kvaran, héraðslæknis, er þá var á Eskifirði. Ég tel ÞVI
rétt, að greina nokkru nánar frá þessum fyrirbrigðum og
athugunum okkar á þeim, en sökum þess, hve erindi mitt
var langt þá, vannst mér ekki tími til að greina ýtarlega
frá þeim að því sinni.
Áður en fundum okkar Sig. H. Kvarans bar saman, hafði