Morgunn - 01.06.1949, Blaðsíða 58
52
MORGUNN
var samhljómurinn dásamlegur, svo að enginn þeirra, sem
þarna voru staddir, hafði nokkurn tíma heyrt þetta leikið
svona vel, ekki einu sinni, þegar Liszt lék þetta sjálfur
í lifanda lífi, en ég þekkti hann persónulega og þekkti,
hversu saman fór hjá honum, er hann lék, átríðuþunginn
og mýktin. Auk mín voru þarna staddir aðrir tónlistar-
menn, sem heyrt höfðu frægustu slaghörpuleikara Evrópu
leika. En það getum við sagt, að svo yfirnáttúrlegan leik
höfðum við aldrei heyrt.“
Árið 1907 hætti Jesse Shepard þessu sálræna starfi,
en í stað miðilsins kom nú fram rithöfundurinn Francis
Grierson. Frægasta bók hans, Valley of Shadows (Skugga-
dalurinn) gefur lesandanum lifandi myndir af atburðum
hins fjölbreytta og undarlega lífs, sem höfundurinn hafði
lifað. Hann sýndi auk þess tvímælalausa snilligáfu sem
rithöfundur í bókum sínum, Modern Mysticism, The Celtic
Temperament og The Humour of the Underman.“
Draumar og dularfull fyrirbæri
úr eigin reynslu.
Eftir Lárus Thórarensen frá Akureyri.
Fororð.
Góðir lesendur. Ég hef lengi ætlað mér að koma þessari
grein á prent, ef það gæti orðið til þess að einhverjir
veittu henni athygli og færu að hugsa meira um þau
mál, sem varða okkur mörgum sinnum meira en allir
gullkálfar heimsins. Við megum ekki láta lífið renna svo
áfram, að við reynum ekki að skilja tilgang þess, en þá
þurfa mennirnir að reyna að þekkja sjálfa sig, sameina