Morgunn - 01.06.1949, Síða 65
MORGUNN
59
og spyr ég þá, hvaða fólk þetta sé, en maðurinn segir:
þetta eru andar, sem koma til þess að fæðast inn í heiminn.
Svo þykir mér við komast upp á þennan klett og ganga
austur brún hans. Þar eru þá sömu stallar og að vestan,
og allt iðandi af mönnum. Ég spyr, hvaða fólk þetta sé
og hvert það sé að halda, en fylgdarmaður minn segir:
Þetta eru andar, sem koma frá jörðunni eftir líkamsdauða
sinn. Svona er lífið, eilífur hringur eða keðja, sem aldrei
slitnar. Menn koma og menn fara og þróunin heldur
áfram.
Þá vaknaði ég.
Góðir lesendur, minnist þess, að þetta er aðeins draum-
ur, sem ekki getur sannast á þann hátt, að hann komi nú
fram. En framtíðin geymir í skauti sínu margt, sem mönn-
um er hulið nú. Og ef hið andlega líf mannsins tekur fram-
förum, er von um, að okkur verði birt meira og fleira um
ráðgátur lífsins en enn er orðið.
Enga ósk á ég heitari en þá, að þjóð mín, já, allur heim-
urinn vildi skilja það, að án guðstrúar og blessunar hans
og friðar geta þjóðirnar ekki lifað. Þetta eru mín síðustu
orð til ykkar, lesendur mínir, sögð af hálfníræðum manni.
Lárus Thórarensen
frá Akureyri.