Morgunn


Morgunn - 01.06.1949, Page 70

Morgunn - 01.06.1949, Page 70
64 MORGUNN en bíða ekki þess, að einhver dæi og kista hans yrði þangað flutt. Combermere lávarður, með ægilegan flokk opinberra starfsmanna og sterkan liðsmann, þar sem var séra T. Orderson, sóknarpresturinn, hélt nú til grafhvelfingar- innar. Þeir komu að dyrunum og allt var í stökustu reglu og innsigli landsstjórans fyrir dyrunum. Nú var steypan brotin upp, og tíu svertingjar áttu fullt í fangi með, aö opna innganginn að hvelfingunni. Þegar inn var komið, sáu menn, sér til skelfingar, að orsök þess, hve erfiðlega svertingjunum hafði veitzt að opna hvelfinguna, var sú, að ein blýkistan, sem var svo þung, að nokkrir menn áttu fullt í fangi með að þoka henni, hafði verið reist upp að dyrunum að innanverðu. Allt var á tjá og tundri inni í hvelfingunni, en engin merki sáust í sandinum, sem stráð hafði verið á gólfið. Svo urðu menn lostnir skelfingu af þessari aðkomu, að nú voru kisturnar fluttar burt og grafnar annarsstaðar. Nú er gamla hvelfingin á þessum afskekkta höfða, sem horfir eins og vörður út yfir Atlants- hafið, tóm að öðru en því, að hún er hæli fyrir snáka og önnur skordýr, og mun svo sennilega verða á næstu kom- andi öldum. Hvað eigum vér að segja um aðra eins sögu og þessa? Áreiðanlek hennar sýnist ekki unnt að draga í efa. ErU nokkur einstök atriði í henni, sem sérstaklega er vert að gefa gaum og athuga frá sálrænum sjónarmiðum, í þeirri von, að finna, hver lögmál ráða þessum fyrirbærum? Eitt slíkt atriði er það, að hin ósýnilegu öfl, sem þarna hafa verið að verki, sýnast hafa haft sérstakt ógeð á blýkistunum. Meðan trélíkkistan var þarna ein, kom ekkert fyrir. Að hún skemmdist, sýnist hafa verið alveg eðlilegt, og þegar búið var að binda hana aftur saman, var hún ekki hreyfð. Ef hún hefur eitthvað skemmzt getur það hafa stafað af því, þegar verið var að umturna blýkistun- um í kring um hana. Þetta er eitt atriði, sem vert er að gefa gaum. Annað slíkt atriði er það, að öll sálræn fyrir-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.