Morgunn - 01.06.1949, Síða 77
MORGUNN
71
í sérhverri af þessum grafhvelfingum, sem sögurnar sögðu
frá, hafi verið samansafnaður þessi leyndardómsfulli en
þó raunverulegi kraftur, sem fyrst hafi streymt út frá
þeim, sem báru kisturnar inn í hvelfingarnar, en hafi
síðan fengið viðbót frá rannsóknarnefndunum, sem komu
inn í hvelfingarnar. En geta má nærri, að rannsóknar-
mennirnir hefðu orðið undrandi, ef þeim hefði verið sagt,
að öll líkindi væru til þess, að sjálfir væru þeir að leggja
fram sinn skerf til þessara fyrirbrigða. En þarna held
ég, að vér séum að uppgötva hinn efnislega grundvöll
allra sálrænna fyrirbrigða, því að það verður aldrei of
greinilega tekið fram, að andarnir eru engan veginn al-
máttugir, og að þeir eru háðir lögmálum, sem eru alveg
eins óhjákvæmileg og lögmálin eru í jarðneskum heimi.
Eitt þessara lögmála er það, að efnislegan grundvöll þarf
að öllum efnislegum fyrirbrigðum. Andarnir geta ekkert
jarðneskt gert í jarðneskum heimi, nema þeir fái eitthvert
jarðneskt efni til að vinna með. Vera má, að í framtíðinni
finnum vér einhvern ekki-mannlegan grundvöll fyrir þess-
um fyrirbrigðum, því að það er hugsanlegt, að einhver
efnasambönd séu til, sem framleiða kunna þennan dular-
fulla kraft, eins og sínk og súrefni framleiðir rafmagnið.
En einhvern efnislegan grundvöll hljóta þessi fyrirbrigði
að hafa. Enginn draugur hefir nokkru sinni komið fram
af eigin krafti sínum. Draugurinn getur verið til án vorrar
hjálpar, en hann getur ekki birzt mannlegum augum nema
því aðeins, að hann geti dregið til þess kraft frá mönnum,
eða e. t. v. dýrum. Mér virðist þetta vera eitt af grundvall-
lögmálum þeirra fyrirbrigða, sem sálarr^nnsóknirnar eru
að fást við.
Fyrir því eru til mörg sönnunargögn, sem ég get ekki
tilfært hér vegna þess að það myndi lengja mál mitt um
of, að þar sem bundinn er endir á lífið áður en það hefur
náð þeim aldri, sem Guð hefur ætlað, hvort sem um morð
eða sjálfsmorð er að ræða, um slysadauða vil ég ekki full
yrða neitt, að þá safnast þar saman ónotuð lífsorka, sem