Morgunn


Morgunn - 01.06.1949, Side 78

Morgunn - 01.06.1949, Side 78
72 MORGUNN geti ef heppileg skilyrði eru fyrir hendi, tekið á sig næsta furðulegar og kynlegar myndir. Ég veit, að þetta er til- gáta, sem enn er ekki hægt að slá fastri, en eftir ýtarlega umhugsun kemst ég ekki fram hjá henni. Þessi tilgáta kemst nokkuð áleiðis til þess að skýra, eða a. m. k. að kasta nokkru ljósi á það, að frá ómunatíð hafa menn orðið varir kynlegra hluta á þeim stöðum, þar sem of- beldisverk eða morð hafa verið framin. Hugsum oss, að hin ósýnilega vera mannsins sé tvískipt, skiptist í hina æðri veru, sem heldur áfram sem andi, og í hina lægri- sem er þá hinar lægri hvatir mannsins og hin ónotaða lífsorka. En sé þessu þannig farið, verður auðsætt, að það er hin lægri vera, lífsaflið, sem enn var ekki notað til fulls vegna hins ofbráða, ótímabæra dauða, sem er að verki á dánarstaðnum og lætur sig þar í ljós í allskonar hálf vitigæddum kynjamyndum. 1 draumalífi voru verðum vér óneitanlega stundum vör einhverrar slíkarar tvískipt- ingar. Vér höfum stundum meðvitund um það, er vér vöknum, að æðri hluti veru vorrar hafi verið í snertingu við háan, andlegan veruleika. En svo getur aftur verið reynsla vor sú, ef vér vöknum, að draumar vorir hafa verið hreinasta rugl, skynsemdarlaust, þótt oss hafi virzt í svefninum algerlega raunverulegt. Þarna hefir hinn óæðri hluti veru vorrar verið að verki, skynsemdarlaus og dómgreindarlaus. Þetta er raunar efni, sem enn er ekki hægt að rökræða, en þeir tímar eru liðnir, að hægt sé að komast fram hjá þessum hlutum með því einu að kalla þá hleypidóma, hégóma og hjátrú. Einhver skynsamleg rök hljóta að liggja til grundvallar fyrir þessum hlutum- Með vaxandi þekkingu eigum vér að færast því nær, að þekkja þessi rök. Að lokum hlýtur þessi spurning að vakna með oss: Hvert er markmiðið með þessum fyrirbrigðum, sem sÖg- umar sögðu frá? Um a. m. k. tvær þeirra getum vér séð, að markmiðið var það, að fá líkin grafin. Það er bersýni- legt, að af einhverjum ástæðum hefur þess verið óskað,

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.