Morgunn


Morgunn - 01.06.1949, Page 85

Morgunn - 01.06.1949, Page 85
MORGUNN 79 bölvandi hinum ósýnilega óvini, sem fylgdi honum. Eng- inn hundur þreifst í návist hans, og jafnvel ættingjum hans var svo ógnað, að hann varð að flýja heimili sitt af ótta við, að móðir hans og systir myndu annars verða að fara í geðveikrahæli. „Þetta er þung refsing," sagði hann við frú Carter Hall, „en vera má, að ég hafi til hennar unnið.“ Það kann að vera, að þessi játning hans hafi verið eins og bjarmi af nýjum og betra degi fyrir hann. Jón Auðuns þýddi. Ákveðinn fyrirboði um útför og andlát. Eftir Einar Jónsson frá Gunnarsholti. Það mun hafa verið í febrúarmánuði 1924, að ég var á heimleið frá beitarhúsunum í Gunnarsholti, í mjög góðu veðri og á auðri jörð um miðjan dag. Vegalengdin er um 20 mínútna gangur. Þegar ég hafði gengið í svo sem 6—8 mínútur, verður mér litið heim til bæjar. Sé ég þá að líkfylgd kemur vestan Geldingalækjargötur og stað- næmist á Gunnarsholtshlaði, en heldur síðan áfram austur grundirnar, sem leið liggur að kirkjustaðnum á Keldum. Ég sé glöggt, að það er Árni bróðir minn, sem þarna er fluttur til grafar. Hann var þá til heimilis að Geldingalæk hinum vestri. Ég sá, að líkfylgdin var ekki stór, en þótti það eðlilegt, því að snjór var mikill og norðan harðviðri í sýn minni. Ég þekkti allt fólkið og þótti mér þar engan vanta, miðað við veðurfarið, nema sjálfan mig, og þótti það alleinkennilegt. Ég sá þá að Bleikur minn dró líkkerruna. Þá hvarf þessi sýn. Nú líður timinn og ég gat ekki gleymt þessu, en hafði þó sterkan hug á að losna við þessar hugsanir, því bæði var það, að ég taldi mig enga dulræna hæfileika hafa, og

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.