Faxi - 01.12.1983, Blaðsíða 6
vita sér þar með, - fyrir hans verð-
skuldan, - borgið - hér í tímans
heimi - og í eih'fðinni líka.
Við vitum áreiðanlega öll, - af
eigin reynslu, hve mikils virði það
er, mannlega talað, - að eiga góða
og trausta vini á vegferðinni í gegn-
um lífið, hve mikinn kraft og styrk
kærleikur þeirra hefir oft og tíðum
gefið okkur. Sjálfur hlýt ég - heils
hugar - og með mikilli gleði að
játa, að vinátta og kærleikur sam-
ferðafólksins hefir skapað mér
ómældar sólskins- og gleðistundir í
liðinni tíð, - og allt til þessa dags.
Það hefir verið mín gœfa að eiga
samleið með góðu fólki.
f»etta á ekki síst við um fyrstu
árin mín hér í Keflavík, - á meðan
ég enn var ungur, - og óreyndur
við störf á þeim mannlífsakri, sem
mér hafði hér verið trúað fyrir.
Ég man, - hve oft ég fann mig
umvafinn óverðskulduðum kær-
leika - og einlægri fyrirbæn. Ekki
halla ég á neinn - eða geri öðrum
rangt, þótt ég segi, að fyrsti ferm-
ingarárgangurinn minn - sem ég
fermdi vorið 1953, 24., 25. og 31.
maí - á hvítasunnu og trínitatis
fyrir réttum 30 árum - hafi jafnan
skipað sérstakan sess í huga mín-
um. Okkar í milli skapaðist þegar í
upphafi sérstakt samband gagn-
kvæmrar vináttu, sem frekar hefir
styrkst en rofnað á áranna rás.
Þess kærleika, sem frá ykkur
streymdi jafnan, vinir mínir, naut
ég á ótalmargan hátt, - bæði beint
og óbeint, - öll 23 árin, sem ég
þjónaði hér syðra. Samskipti okk-
ar verða mér sístætt dæmi um
blessunaráhrif mannlegs kærleika.
Og þegar ég svo einnig hugsa um
það, - hversu dásamlega Guð hefir
leitt okkur og blessað, - bæði í
meðlæti og mótlæti, - þá fyllist
hugurinn helgri þökk til hans, sem
vissulega ,,er meiri en hjarta vort
og þekkir alla hluti" eins og Jó-
hannes postuli kemst að orði á ein-
um stað, og það vil ég fullyrða, að
hafi eitthvað áunnist - til gagns og
blessunar í starfi mínu hér syðra, -
þá er það, - næst Guðs náð, - kær-
leika ykkar, - fyrstu fermingar-
barnanna minna að þakka í langt-
um ríkari mæli en þið sjálf getið
gert ykkur grein fyrir. - Margar
hugljúfar - og hjartfólgnar minn-
ingamyndir á ég í barmi geymdar
frá starfinu hér í kirkjunni, - og í
prestakallinu yfirleitt. - Mér var
það alveg sérstaklega mikil gleði,
að eiga þess kost að skíra litla dótt-
ur einnar af mínum fyrrverandi
fermingardætrum hér í dag. Það
minnti mig á skím lítils drengs,
sem ég framkvæmdi hér í Keflavík
fyrir mörgum árum - að vorlagi. -
Ég hafði h'ka fermt þá móður á
sínum tíma. En þegar skímin fór
fram, hafði hún nýlokið stúdents-
prófi. Ég spurði hana hvort hún
hefði ekki átt erfiðara með að ein-
beita sér að próflestri og prófum
vegna umhugsunarinnar um litla
frumburðinn, sem hún hlaut að
dvelja í fjarlægð frá. - Hún kvað
nei við því, og sagðist hafa talið
það skyldu sína, ekki síst litla son-
arins vegna, að ná eins góðu prófi
og kostur var á. -, ,En“ - bætti hún
við, um leið og hún brosti hlýju
björtu móðurbrosi, ; ,,ég hafði
myndina af honum með mér í öll
prófin, -og ég fann, að í hvert sinn
sem ég leit á hana, fór mér að
ganga betur.“ Ég skildi hana vel.
Það var kraftur móðurkærleikans
FRAMHALD Á BLS. 290
GUBSQHD
FERMINGARBÖRNIN í KEFLAVÍKURPRESTAKALLIVORIÐ 1953.
FYRSTU FERMINGARBÖRN SÉRA BJÖRNS JÓNSSONAR.
Fremst: Jóhanna Tyrfíngsdóttir, Ásmunda Sigrún Benediktsdóttir, Anna
Þorgnmsdóttir, Hrafnhildur Pétursdóttir, Sólveig G. Sigfúsdóttir, Kristjana
Bjömsdóttir,séra Bjöm Jónsson, Birgir Guónason, Karl Steinar Gudnason,
Konráð H. Júlíusson, Guðmundur Valur Ólafsson, Kristján A. Jónsson, Mar-
geir Sigurbjörnsson, Brynjar Valdimarsson, Hannes Reynir Sigurðsson,
Heiðar Þór Hallgrímsson.
Önnur röð: Kolbrún Sigurðardóttir, Inga Kristín Guðmundsdóttir, Bára
Erna Ólafsdóttir, Ingólfur Þ. Falsson, Gísli Grétar Ólafsson, Halldór G. Bárð-
arson, Níels Jónsson, Stefán Þór Guðmundsson, Sigurður Friðriksson, Gylfi
Arnar Pálsson, Heiðar Magnússon, Lýður Ámason.
Þriðja röð: Lára Steinþórsdóttir,Jana Erla Ólafsdóttir,Júlíana Sigríður Elen-
tínusdóttir, Vilborg Guðleifsdóttir, Ingunn Guðnadóttir, Eysteinn J. Jóseps-
son, Júlíus Grétar Bjarnason, Sverrir Jóhannsson, Einar Jóhannsson, Bjöm
Ósberg Helgason, Birgir Friðriksson, Ævar Guðmundsson, Þórður Þorsteins-
son.
Fjórða röð: Elsa Lilja Eyjólfsdóttir, Elísabet Lúðvíksdóttir, Sólveig Steinunn
Jónsdóttir, Guðrún María Guðmundsdóttir, Sólveig Guðný Gunnarsdóttir,
Alda Steinunn Jensdóttir, Einar Erlendsson, Sigurður B. Kristinsson ogjón
Stefánsson.
Ingibjörg Guðrún Sigurjónsdóttir og Kristinn Þór Guðmundsson voru einnig
í fermingarhópnum, en þau em ekki á myndinni.
206-FAXI