Faxi - 01.12.1983, Side 60
ferðirnar væru sameinaðar. En
þegar flug átti að hefjast, kom í
ljós að fresta yrði för enn um
nokkra tíma vegna þoku í Luxem-
bourg. Heim var svo komið sólar-
hring seinna en áætlað hafði verið.
Niðurstöður ferðarinnar
Seint í sumar barst mér í pósti
skýrsla B.S.E.S. ’82 - ’83, sem var
80 síðna bæklingur og kort það er
gert hafði verið á Grænlandi, en
svæðið sem var kortlagt er álíka
stórt og bæjarland Keflavíkur. í
þessum bæklingi er heilmikið að
finna, s.s. skýrslur fararstjóranna
tveggja, tvö sendibréf, saga
B.S.E.S., reikningsyfirlit auk
skýrslna frá öllum þeim sérfræð-
ingum, er stunduðu rannsóknar-
störf í leiðangrinum, og að lokum
hvemig þjálfunin fór fram. Allt er
þetta yfirgripsmikið og komið inn
á alla þætti ferðarinnar. Upphaf-
lega var ætlunin að birta hér helstu
niðurstöðurnar, en til þess treysti
ég mér hreinlega ekki, enda mikið
sérfræðingamál notað og erfitt að
taka sérstaka þætti út úr. Auk þess
var nú í sumar nýr leiðangurshóp-
ur, sem fór út á vegum sömu aðila
og átti að halda áfram rannsókn-
um, þar sem frá var horfið, en ef
einhver skyldi hafa áhuga á að fá
að líta í bæklinginn nú, þegar sam-
skipti þessarra tveggja þjóða, þ.e.
fslands og Grænlands eru að auk-
ast, þá er það velkomið.
Lokaorð
Nú þegar þessum skrifum er
lokið og ég lýt yfir allar greinamar
finnst mér í raun alltof h'tið hafa
Greinarhöfundur ífullum skrúda.
verið sagt. Lítið sem ekkert hefur
verið minnst á þann mannlega þátt
í þessari ferð, hvað þá öll þau
skondnu atvik er ávallt vom að
ske. En ef skrifa ætti allt er í huga
manns kemur varðandi ferðina,
allar hugsanir og pælingar væri það
efni í heila bók, en það var ekki
ætlunin og því er málið eins og er,
þótt eflaust mætti betur fara. Mig
langar þó að minnast á eina máltíð
er skeði á hótelinu á Angmagsahk í
upphafi ferðarinnar. Undirbún-
ingshópurinn okkar samanstóð af
5 Bretum, einum Ástrala, er var
sem skiptinemandi í Bretlandi,
einum Dana er var í bandarískum
skóla í Frakklandi og mér íslend-
ingnum. Einnig vom í matsalnum
2 ástralskar stúlkur er höfðu unnið
í fiski á íslandi. Þama vom líka
Frakkar, ítalir og Bandaríkja-
menn. Og líka Grænlendingar og
Danir og ekki má gleyma Þjóð-
verjunum, sem alls staðar eru.
Þetta var þó nokkuð sérstök mál-
tíð, þar sem snæddur var græn-
lenskur þjóðarréttur, sem saman-
stóð af selkjöti, kálmeti, er ég
kann ekki að nefna, kartöflum og
ýmis konar sósum.
Heyrt hef ég suma spyrja hvort
ég hafi ekki séð eftir þessu, tvo
mánuði frá vinnu og kostnaðar-
söm endurnýjun á útbúnaði. Þess-
ar spurningar eru frekar fátíðar, en
til samt. í mínum huga em engar
efasemdir um þetta, því skilning-
ur, reynsla og sá lærdómur er
manni hlotnaðist, er ómetanlegur.
Þetta eru mín lokaorð og vil ég svo
að endingu þakka fyrir lesning-
una.
SiGu.
/
Oskum Suðurnesjabúum
gleðilegra jóla og
farsældar á
komartdi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Hafnargötu 62, Keflavík
260-FAXI