Faxi - 01.12.1983, Qupperneq 83
7. Ekkjubætur fengu 87
kr. 1.191.331.-
8. Fæðingarorlof kr. 3.418.001.-
Bætur samtals greiddar til Keflavík-
ur 1981 voru því alls kr. 32.688.276.-
Þá voru barnsmeðlög greidd 501
móður með 595 bömum
kr. 4.960.752,-
Framfærslukostnaður 4 þroskaheftra
barnavar kr. 313.006.-
241 ellilífeyrisþegi fékk kr. 2.362.132.-
í uppbót
448 ellilífeyrisþegar fengu kr.
6.782.737.- í tekjutryggingu
129 ellilífeyrisþegar fengu kr. 716.954.-
í heimilisuppbót.
Á sama hátt fengu örorkulífeyrisþegar
aukna aðstoð:
32 bótaþegar fengu kr. 213.446,- í upp-
bót
82 bótaþegar fengu kr. 1.352.900,- í
tekjutryggingu
20 bótaþegar fengu kr. 116.111,- í
heimilisuppbót.
t>á má að lokum geta þess að í um-
boðinu voru veittir ökutækjastyrkir að
upphæð kr. 64.800.-.
Af þessari upptalningu má sjá að
margir njóta góðs af þjónustu Al-
mannatrygginganna og það er jafn
ljóst að óhemju mikil vinna liggur að
baki öllum þessum bótagreiðslum.
Afmaelishóf Kvenfélags
Grindavíkur.
Laugardaginn 26. nóvember s.l. var
haldin í Félagsheimilinu Festi í
Grindavík hátíðarsamkoma í tilefni af
60 ára afmæli Kvenfélags Grindavíkur.
Formaður félagsins frú Jóhanna Sig-
urðardóttir setti samkomuna með
ávarpi og rakti sögu félagsins í stórum
dráttum.
Hún fól Hildi Júlíusdóttur veislu-
stjórn.
Síðan hófst borðhald. Margar ræður
voru fluttar og gjafir færðar frá kven-
félögunum í sýslunni.
Olína Ragnarsdóttir forseti bæjar-
stjórnar Grindavíkur afhenti félaginu
f.h. bæjarbúa stóran hátíðarfána. Bær-
inn gaf einnig 50 borðfána. Olína er
formaður Kvenfélagasambands Gull-
bringusýslu og kom fram einnig fyrir
þess hönd. Fáninn er merki félagsins
og er hannaður af Evelín Adolfsdótt-
ur, sem er félagi í K.G. Þá var gerður
afmælisplatti í Glit, einnig hannaður af
félagskonu, Margréti Gísladóttur.
Fimm félagskonur (kvintett) sungu
nokkur lög undir stjóm Ólafs Rúnars
Þorvarðarsonar, en hann er sonarson-
ur stofnanda og fyrsta formanns félags-
ins Guðrúnar Þorvðarardóttur frá Ási.
Guðbjörg Ásgeirsdóttir flutti gaman-
mál um hinn fullkomna eiginmann -
sem mun vera samið af annarri félags-
konu.
Einnig flutti séra Jón Á. Sigurðsson
skemmtimál og Einar Kr. Einarsson
f.v. skólastjóri rifjaði upp sitt hvað úr
sögu félagsins - einkum frá fyrri tíð.
Fimm félagskonur voru heiðraðar:
Helga Þórarinsdóttir, Guðbjörg Pét-
ursdóttir, Margrét Eiríksdóttir, Sólrún
Guðmundsdóttir og Matthildur Sig-
urðardóttir. Allar hafa þær verið í fé-
laginu mjög lengi og unnið því vel.
háttur Matthildar er sennilega ein-
stæður í íslandssögunni, en hann er sá
að 10 dætur hennar og 2 tengdadætur
eru allar starfandi í félaginu.
Aðkeyptir skemmtikraftar voru
ekki umtalsverðir - nema hvað hljóm-
sveit Grettis Bjömssonar spilaði bæði
dinner músik og síðar undir dansi með
ágætum.
Ráðstefna um heilsustöð við
Svartsengi.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesj-
um, Hitaveita Suðumesja og Samtök
Psoriasis- og exemsjúklinga boðuðu til
ráðstefnu um heilsustöð í Svartsengi.
Ráðstefnan fór fram á Hótel Loftleið-
um 26. nóvember sl. Boðaðir vom
sveitarstjórparmenn á Suðumesjum,
stjóm hitaveitunnar, fomstumenn
psoriasis- og exemsjúklinga, þing-
menn kjördæmisins, landeigendur,
fulltrúar heilbrigðismála í landinu (t.d.
var landlæknir á ráðstefnunni), full-
trúar ferðamála, fulltrúi Loftleiða o.fl.
Alls sátu milli 60 - 70 manns ráðstefn-
una.
Margir fyrirlestrar vom fluttir um
sérfærðileg efni er mál þetta varða.
Verður nánar gerð grein fyrir þeim í
næsta blaði þar sem Jólablaðið var nær
full frá gengið er ráðstefnan fór fram.
Valdimar Ólafsson, formaður
SPOEX, setti ráðstefnuna með stuttri
ræðu og fól síðan Ellert Eiríkssyni,
sveitarstjóra í Garði að stjórna dag-
skrá, sem var í 10 liðum og síðan
,,Panelumræðum“ eftir að þrír um-
ræðuhópar höfðu skilað álitsgjörðum.
f þeim umræðum kom fram átakan-
leg lýsing á þeim líkams- og sálar-
spjöllum er psoriasis veldur þeim er
hafa þann sjúkdóm á háu stigi. Þá tók
fjármögnunarþátturinn mikið rúm í
þessum umræðum, enda kostar mikið
fé að koma upp fullkominni aðstöðu af
þeirri stærðargráðu er hér var rædd.
Ráðstefnan var hin fróðlegasta og
athyglisverðasta og fór í alla staði vel
fram. Stjórnandinn gerði sér ogöðrum
grein fyrir knöppum tíma og stjómaði
skv. því. Hún hófst stundvíslega kl. 9
og var formlega slitið kl. 16.30, en þá
var ekið að Bláa lóninu í Svartsengi.
Þar var byrjað á að skoða hótelið sem
þar var opnað í haust og þegnar góð-
gerðir hjá Þórði Stefánssyni, hóteleig-
anda. Þaðan var farið að Bláa lóninu
og aðstaða psoriasis sjúklinga þar
skoðuð. Síðan voru mannvirki Hita-
veitunnar skoðuð undir leiðsögn Ing-
ólfs Aðalsteinssonar og veitingar
þegnar í boði Hitaveitu Suðumesja.
--------------------------------
Hvað í ósköpunum ertu að gera
um hánótt, kona? Þú ert að róta í
vösunum mínum!"
,,Já, elskan, mig tlreymdi áðan
að þú lofadir að gefa mér þúsund-
kall og ég þorði ekki að hœtta á, að
vekja þig.“
Hún var orðin 100 ára og af því
tilefni spurði hlaðamaður hana
hvernig heniti liði yfirleitt.
,, Ojú, />að er nú orðið heldur ró-
legra núna, sérslaktega eftir að ég er
húin að koma öllum börnunum
mínum á elliheimili. “
v__________________________________/
TILKYNNING
Kef lavík - N jarðvík -
Grindavík - Gullbringusýsla
Samkvæmt lögum nr. 46/1977 og reglugerð
nr. 16/1978, er hverjum og einum óheimilt aó
selja skotelda eða annað þeim skyltnema hafa
til þess leyfi lögreglustjóra.
Þeir sem hyggja á sölu framangreinds varn-
ings, sendi umsóknir sínar til yfirlögregluþjóns í
Keflavík, eigi síðar en 22. desember 1983. Aó
öðrum kosti verða umsóknir ekki teknar til
greina.
Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjóni á
löreglustöðinni í Keflavík.
Lögreglustjórinn í Gullbringusýslu
Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík
og Njarðvík
Brunavarnir Suðurnesja.
KJÖLUR s/F
Olíusamlagshúsinu
Víkurbraut 13 Keflavík
Kjölur hefur meðal annars umboð fyrir og selur eftirtaldar vömr:
THERMOR eldavélar, bökunarofna, með og án blásturs, helluborð,
gufugleypa.
THERMOR er orðið landsþekkt fyrir gæði og gott verð.
THERMOR er framleitt i Frakklandi, af einni stærstu verksmiðju í
Evrópu, í þessari grein.
ARISTON kæliskápa, frystiskápa, þvottavélar, uppþvottavélar o.fl.
ARISTON er orðið landsþekkt fyrir hina ágætu framleiðslu sína og
verð.
ARISTON er ítölsk verksmiðja, frekar stór og mjög vandlát í fram-
leiðslu. Henni hefurtekist að halda verði í algjöru lágmarki.
GIRMI framleiðir margs konar vömr s.s. ryksugur, alls konar grill, hár-
þurrkur, hakkavélar, pressur, brauðhnífao.fl.
GIRMI er líka orðið landsþekkt fyrir gæði og gott verð.
GIRMI er stór ítölsk verksmiðja og framleiðir mjög vandaðar vömr.
Við höfum alltaf verið vandlátir við val á framleiðendum enda tekist að
hafa vandaðar og ódýrar vömr.
Við kaupum allt beint frá framleiðsluverksmiðjum.
KJÖLUR hefur til sölu og sýnis ofangreindar vömr, að Víkurbraut 13,
Keflavík.
Aðalbúðin er í Reykjavík, Hverfisgötu 37.
Við viljum helst að fólk beri saman verð og gaeði. Þegar það er gert,
kauþir fólk hjá okkur í KILI.
Gott verð - Gæða vara - Góð kjör.
KJÖLUR
Víkurbraut 13, Keflavik - Simi 2121
Hverfisgötu 37, Reykjavík - Simar 21490 og 21846
FAXI-283