Faxi - 01.12.1983, Síða 85
Félag áfengisvamanefnda í Gullbringusýslu efndi til ritgerðasam-
keppni á s.l. vori ineðal nemenda i áttundu og níundu bekkjum grunn-
skólanna á félagssvæðinu.
Ritgerðarefnið var: „Tjón af völdum vímugjafa". Ritgerðasam-
keppninni var almennt mjög vel tekið jafnt af kennurum skólanna sem
nemendum og margar vandaðar og athyglisverðar ritgerðir voru samd-
ar. Alls voru veitt 10 peningaverðlaun auk tveggja b<>kaverðlauna.
Meðal verðlaunaritgerðanna er ritgerð sú, sem hér birtist. Höfundur
hennar, Þuríður Arnadóttir, var nemandi í níunda bekk Gagnfræða-
skólans í Keflavík s.l. vetur og stundar bún nú nám við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Foreldrar Þuríðar eru hjónin Matthildur Oskarsdóttir og
Arni Vigfús Árnason. Faxabraut 38 c, Keflavík.
FAXI fagnar lofsverðu framtaki Félags áfengisvarnanefnda í Gull-
bringusýslu og hinni góðu þátttöku í ritgerðasamkeppninni og óskar
Þuríði sem og iiðrurn þeim nemendum, sem sköruðu fram úr í sam-
keppninni til hainingju með árangurinn.
ÞURÍÐUR ÁRNADÓTTIR:
TJÓNAFVÖLDUM VÍMUGJAFA
ÁVANA- OG FÍKNIEFNI
INNGANGUR
Ávana og fíknilyf eru hvers kon-
ar efni, sem þannig verka á mið-
taugakerfið, að menn geta með
stöðugri neyslu þeirra, vanist þeim
það mjög, að myndi fíkn.
Fíkn er eins konar hástig ávan-
ans og því er talað um ávana og
fíknilyf og efni. Ávana og fíknilyf
og fíkniefni eru því stundum einu
heiti nefnd vímugjafar. Langal-
gengasti og þekktasti vímugjafi
hér á landi og víðar er alkóhól eða
áfengi. Skoða má áfengi sem
dæmigerðan vímugjafa, enda á
það, sem hér fer á eftir einnig í
stórum dráttum við um aðra vímu-
gjafa.
Tóbak er að sjálfsögðu einnig
vímugjafi, en hefur annars konar
verkan en hinir fyrrgreindu.
í þessari heimifdaritgerð mun ég
fyrst skrifa um fíkniefnin þ.e. hass,
marijuana, L.S.D., englaryk,
opíum, morfín, heroin o.fl., síðan
mun ég skrifa í grófum dráttum um
tóbakið og að lokum um áfengið.
FÍKNIEFNI
Kannabisefni (hass og
marijuna)
Hass er unnið úr indversku
hampjurtinni, Cannabis sativa,
sem vex víða, bæði villt og ræktuð,
í hitabeltislöndunum og í heit-
tempruðum löndum. Kannabino-
iðar veldur því að fólk fer í vímu.
Marijuna er talsvert veikara en
hassið.
Hassið er oftast reykt, en einnig
stundum tuggið. Verkun þess er
aðallega fólgin í skynvillu og mað-
urinn upplifir umhverfið á óraun-
verulegan hátt. Neytandanum
finnst sem hann sé hafinn yfir allt
daglegt amstur og leiðindi hvers-
dagsh'fins. En við stærri skammta
fara skyntruflanir vaxandi, allt frá
minni háttar afbökun skynáhrifa
til eiginlegra skyntruflana, sem í
einstaka tilfellum endar á geðbil-
un. Bráð geðtruflun getur komið í
ljós vikum eða mánuðum eftir síð-
ustu hass neyslu.
Neysla kannabisefna byrjaði á
íslandi upp úr 1970 en á síðustu
fimm árum hefur hún færst mjög í
aukana. Samt er neysla kannabis-
efna minni á íslandi en á hinum
Norðurlöndunum.
Hass er ávanabindandi efni.
Kannabisreykingum fylgja oft
breytingar á persónuleika, nær-
minni versnar, þ.e.a.s. kannabis-
neytendum gengur illa í skóla.
Kannabisneysla dregur úr kyn-
hormónaframleiðslu, þ.e.a.s. kyn-
geta minnkar og sæðisfrumufram-
leiðsla hjá karlmönnum minnkar.
Kannabisefni hafa mun meiri
krabbameinsvaldandi efni en
tóbaksreykur.
Sumir unglingar halda því fram
að það stafi ekki meiri hætta af
kannabisreykingum heldur en af
áfengisnotkun, en benda má les-
anda á að fólk verður ekki áfengis-
sjúklingur fyrr en eftir nokkurra
ára neyslu en það tekur ekki nema
nokkrar vikur að verða vananeyt-
andi kannabisefna.
L.S.D.
L.S.D. (lysergsykudietylamid)
eða ,,sýra“. L.S.D. er unnið úr
sveppum sem vaxa á rúgi. L.S.D.
er eitt af sterkustu skynvilluefnum
sem menn þekkja. Neytandinn
upplifir mikla sælutilfinningu og
vellíðan. Áhrif eins skammts varir
í 6 - 9 klukkustundir. L.S.D. veld-
ur mjög miklurn heyrnar- og sjón-
ofskynjunum ásamt afbökun á
eðlilegum skynáhrifum. Neytand-
inn lifir í öðrum heimi, missir alla
tímaskynjun. Mörg dæmi eru um
sjálfsmorð, manndráp og önnur
óhæfuverk framin undir áhrifum
L.S.D. Svokallað „Flash-back" er
algengt hjá L.S.D. neytendum.
...OKKAR MAÐUR
er i nágrenn;
KEFLAVlK:
Samvinnubankinn,
Pétur Jóhannsson.
GRINDAVlK:
Maqnús Ingólfsson,
Staoarhrauni 19.
MOSFELLSSVEIT:
Einar Kristiánsson,
Markholti 13.
REYKJANESKJÖRDÆMI.
HAFNARFJÖRÐUR:
Samvinnubankinn,
Sigurður Gunnarsson.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMÚLA3 SÍMI81411
UMBOÐSMENN UM LANDALLT
FAX1-285