Faxi - 01.12.1983, Page 91
treysta á þá, - aö okkar eigin
skuggi falli einmitt þar á, sem ljós
Drottins ætti aö lýsa allra skærast.
Við eigum erfitt með aö skilja
þetta, - og þó ef til vill ennþá erfið-
ara með, - oft og tíðum - að sætta
okkur við það. Og stundum þurfa
margar þrengingar að verða á veg-
inum, - áður en augun opnast fyrir
þeim sannleika að auðmjúkt og
sundurmarið hjarta getur orðið
hið dýrðlegasta verkfæri í Drottins
föðurhendi. Sem dæmi þessari
staðhæfingu til stuðnings, kemur
fram í huga minn lífsreynsla
Bodelsehwings hins fræga, þýska
prests og mannvinar, sem uppi var
á síðari hluta seinustu aldar. Hann
var ungur og hamingjusamur faðir
fjögurra barna, - og þau hjónin
áttu dásamlegt heimili. Allt var
svo unaðslega bjart, - hvergi
skuggi á lofti. En svo syrti skyndi-
lega að. - Þegar elsta bamið var 7
ára - og það yngsta eins árs, -
veiktust þau öll af landfarsótt, sem
geisaði um þær mundir. - Allt var
reynt til bjargar, sem í mannlegu
valdi stóð. Foreldrarnir ungu
vöktu og báðu, en að því er virtist -
án árangurs. - Innan hálfs mán-
aðar voru öll börnin látin. Litlu
rúmin 4 stóðu nú auð. - Þessi ægi-
þunga reynsla varð móðurhjart-
anu slík ofraun að innan fárra
mánaða varð það hlutskipti eigin-
mannsins - að flytja konu sína til
lífstíðar dvalar - á geðveikrahæli.
Nú stóð ungi presturinn aleinn
uppi. Hvað gat hann gert? Hann
beindi huga sínum til hæða, -
horfði upp í ljósið og bað: ,,Hér er
ég, Drottinn minn og Guð, -
reiðubúinn til þess að þjóna þér, -
ef þú finnur mig ennþá til einhvers
nýtan.“
Bodelsehwing lést í hárri elli
árið 1910. Þá hafði honum auðnast
að setja á stofn fjölmörg hæli fyrir
munaðarlaus börn, -og böm, sem
vegna líkamlegrar fötlunar áttu
ekki samleið með fjöldanum.
Þessar stofnanir bera allar nafnið
,,Betel“. En Betel þýðir ,,Guðs
hús“.
Þannig sneri Guð böli þessa
manns í blessun fyrir þúsundirnar
af því að hann bar gæfu til þess að
horfa upp, - en ekki niður, - og
leggja allt sitt í Guðs föður hendur.
Hróp mannvinarins mikla barst til
hans hvaðanæva að. „Lát þitt eig-
ið böl verða öðrum, sem böli em
slegnir, til blessunar. Ég skal
blessa þig - og h jálpa þér til þess að
breyta sorgarskuggum sálar í
gleðigeisla til handa þeim, sem
þurfa mest á mínu kærleiksljósi að
halda.“
Ég átti því láni að fagna, þegar
ég dvaldist í Þýskalandi 1956 -
1957, að heimsækja eitt af þessum
heimilum sem bera nafnið Betel og
kennd eru við Bodelsehwing. Þar
dvöldu drengir, sem voru lamaðir
að meira eða minna leyti.
Þessari heimsókn gleymi ég
aldrei. Áhrifunum, sem ég þar
varð fyrir, get ég á engan hátt bet-
ur lýst en með því að segja, að mér
fannst, sem væri ég staddur í dýr-
legum helgidórni.
Kæru vinir mínir og áheyrend-
ur. Getum við þá ekki látið dæmi
þessa raunabams vera okkur leið-
arljós, þegar á móti blæs og yfir
skyggir í okkar eigin h'fi? - Eigum
við ekki, - eins og hann, - að
geyma mynd Frelsarans, bjarta og
skíra í hjörtum okkar, svo að hún
megi lýsa, þegar leiðin gerist grýtt
og myrk, - ekki aðeins okkur sjálf-
um, - heldur og öllum þeim, sem
við eigum samleið með?
En umfram allt skulum við þó
láta ljós kærleikans og mannúðar-
innar hvarvetna skína, og varpa
birtu og yl inn í tilveru þeirra, sem
bágast eiga, - og hörðustu bölinu
eru slegnir í lífsbaráttunni, sem
stundum verður svo óskiljanlega
erfið, miskunnarlaus og sár.
Fermingarhópurinn 1953 hefur
líka mætt mótlæti í ýmsum myndu-
m. - Þyngst voru höggin, þegar
dánarklukkurnar hringdu á björtu
æskuvori, - eða þegar ævisólin
stóð í árdegisstað, - og sex eru
skörðin orðin í hópinn fríða, -
fimm drengir og ein stúlka fallin
fyrir dauðans bitra brandi. - En í
þeim röðum hefi ég séð ástvina-
sorgina snúast og ummyndast í
huggunargeisla til handa þeim,
sem mest þurftu á þeim að halda.
Þannig hefur Guð einnig verið að
verki ykkar á meðal, vinir mínir, -
og alltaf beint vegferðinni í bless-
unarátt.
- í fermingarræðunum, sem ég
flutti ykkur, vinir, vorið 1953,
komst ég m.a. svo að orði í niður-
lagsbæn fyrir ykkur: ,,Ég bið þig,
góði Jesús, að þú gefir, að þau
verði eins góð öllum samferða-
mönnum sínum á lífsleiðinni og
þau hafa verið mér í vetur. Þá mun
birta og gleði fylgja þeim, - og
blóm vaxa í sporum þeirra.“ - Ég
leyfi mér í dag, í allri auðmýkt, að
þakka bænheyrslu þessarar bænar
að svo miklu leyti sem séð verður
frá mannlegu sjónarmiði. Og enn
er mér hin sama bæn í huga, þegar
ég af hrærðu hjarta þakka ykkur
vinir, þann heiður sem þið sýnið
mér með því að kveðja mig til þess-
ara hátíðarstundar - í fermingar-
kirkjunni ykkar. - í dag ætla ég að
fela bæn mína í þessum orðum hins
alkunna ljóðs Vilhjálms heitins
Vilhjálmssonar, er hann segir við
litla drenginn sinn:
„Allt hið góða í heimi haldi í
hönd á þér og með þér sé.“
En allt hið besta hér í heimi og í
eilífðinni líka, sameinist í kærleika
Guðs, sem birtist okkur í Jesú
Kristi, Frelsara okkar og Drottni,
- ,,Vertu alltaf góður“. Þessi orð
voru kjarninn í myndinni, sem ég
minntist á í upphafi máls míns, - og
um leið lokaniðurstaða hennar.
Til þess að vera alltaf góð, -
reynast öllum vel, - erum við köll-
uð, eitt og sérhvert okkar til þess
að varpa frá okkur ylgeislum kær-
leikans, og skapa gleði úrgráti- og
geisla úr skuggum.“
Til þess hlutverks ert þú kallað-
ur af þeim kœrleika, sem á kross
var negldur, vegna þín. Og það er
hann, sem segir við okkur í dag.
,, Þetta er mitt hoðorð, að þér elsk-
ið hver annan, eins og ég hefi elsk-
að yður.“
ÚRVAL-
GÆÐI-
ÞJÓNUSTA
“í
Síðumúla 22 - Sími 31870
Keflavík - Sími 92-2061
S Gardínubmutir
SKEMMUVEGI 10 KÓPAVOGI. SlMI 77900
ÚRVAL AF GLUGGATJALDAEFNUM í ÁLNABÆ
ÚRVAL AF STÓRESEFNUM í ÁLNABÆ
ÚRVAL AF ELDHÚSGLUGGATJÖLDUM í ÁLNABÆ
ÚRVAL AF BLÓMASTÓRESUM í ÁLNABÆ
Við tökum að okkur saum á gluggatjöldum.
Við mælum og setjum upp ef óskað er.
Við bjóðum greiðsluskilmála.
Við sendum í póstkröfu um land allt.
Verið velkomin eða hringið, því við höfum alltaf eitthvað við yðar hæfi.
Tökum mál, smíðum og setjum upp Z gardínubrautir ef óskað er.
FAXI-291