Straumar - 01.04.1930, Qupperneq 15

Straumar - 01.04.1930, Qupperneq 15
S T R A U M A K 9 ur að uppgötva eitthvað, sem græða má á, vélar, crku- lindir, sparnað, þægindi, flýti. Og þeir, sem ekki hafa gaman af því, mega fitla við að grafa upp gamlar rústir úr forsögu mannkyns og dunda við gamlar sagnmyndir, eða annan hégóma. Og þjóðfélagið gerir eitthvert lág- mark þekkingar í þessum ófrjóu fræðurn að einkaskilyrði fyrir embættum og völdum. Aðeins má ekki hrófla við skipulaginu. En á meðan þessu fer frarn, greinast mennirnir í tvo hópa: Þá, sem ekkert eiga og aldrei eiga þess kost að eignast neitt, öreigana. Og hina, sem starfstækin eiga og auðæfi allskonar, borgarana. Annar hefir sakir efna sinna aðgang að þekkingu, listaum og hverskyns fögrum mentum. Hinn á engis kost nerna að fúna niður i fáfræði, áþján og vesaldómi. Hann hefir félagslega aðstöðu til þess, að æskja breytinga, en skortir þekkingu og vald. Með hinum heldur raunsæið áfram að þróast, þar eru tækin fyrir hendi til þess að mynda sér vísindalega lífs- skoðun og menningarstefnu. En stéttin í heild sinni hef- ir ekkert við hana að gjöra í sjálfu sér, af því hún er einráðin þess, að láta hana ekki orka neinu í mannféiags- málum. En smám saman tekur öreigalýðurinn að þoka sér saman. Auðvaldið heldur að vísu uppi úreltu skipulagi og neytir allra bragða til þess að varðveita það. En hin vísindalega lífsstefna síast niður á við til hins ófróða verkalýðs, mentar hann, breytir hugarfari hans og við- horfum. Og vísindaleg lífsstefna, sem í höndum auðstétt- anna hafði jafnan koðnað upp í borgaralegu daðri, lista- fitli og skriffinsku, er nú tekin upp af verkalýðnum, sem alger höfnun ríkjandi félags- og lífsforma. Hún er tekin upp í ákveðnum tilgangi um að gera hana að æðsta drottinvaldi yfir högum mannanna, án minsta tillits til þess, hvað þar verði að þoka úr vegi, af stefnum, skoð- unum og stofnunum. Það er þetta, sem hefir altekið yngstu æsku Evrópu eftir ófriðinn. Hún vill ekki láta slátra sér oftar. Ilún vill ekki láta fylla sig með blekk- ingum og ósannindum. Hún vill ekki láta gera sig að and-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Straumar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.