Straumar - 01.04.1930, Page 31

Straumar - 01.04.1930, Page 31
___________________STRAUMAR_____________________25 auðvaldið blæs að eftir mætti, líka hér á landi, til að sundra alþýðunni. Þetta hatur trúbræðra út af lítilsverðum kenninga- mismun hefir leitt hina mestu óhamingju yfir mannkynið, og er hörmulegt til þess að vita, ef öreigarnir lenda í sömu villunni, svo að þeir sem eru bræður, skuli berjast, en gleyma takmarki stefnunnar vegna skorts á um- burðarlyndi. Þrátt fyrir það, sem áður var sagt, að jafnaðarstefn- an sé trú öreigans, svo að kristindómurinn sé útilokaður, eru þó dæmi þess, að hvorttveggja fari saman. Tii eru svokallaðir kristilegir jafnaðarmenn, og þeir hafa tölu- verð áhrif í Þýzkalandi, þó að þeir séu miklu færri en aðrir socialistar og kommunistar. Dr. P. telur þá vera einu von þess, að kirkjan fái haldizt með öreigalýðnum. Kristilegir jafnaðarmenn líta svo á, að kristindómur og jafnaðarstefna séu aðeins tveir vegir að sameiginlegu marki. Jafnaðarstefnan ætlar sér að skapa nýtt þjóðfélag, en til þess þax-f hún hjálpar trúarinnar. Skal ég koma nán- ar inn á þetta atriði seinna. Innan jafnaðarstefnunnar eru mjög miklar andstæð- ur í kenningum, þar sem er annars vegar hin efnishyggju- lega jafnaðai'stefna hins ómentaða lýðs, og hinsvegar hin trúarlega og kristilega jafnaðarstefna hugsjónamannsins, og alt þar á milli. En þessar mismunandi kenningar byggja á sama grundvelli, trúnni á jafnaðarstefnuna, ti’únni á lífsskoðun hennar og endurleysandi mátt hennar fyrir maimkynið, trúnni á hana sem það lífsvei'ðmæti eitt geti gefið tilverunni innihald og markmið. Þannig er þá málum komið í Þýzkalandi og víða í öðr- urn iðnaðarlöndum Evi'ópu. Og þýzka kirkjan berst ör- væntingai'fulli'i bai'áttu fyrir tilvei’u sinni og kristindóms- ins hjá öi'eigalýðnum, og er ósýnt hvemig fara rnuni. Rússneska verkalýðsríkið hefir tekið ákveðið fjandsam- lega stefnu gegn öllum trúarbrögðum, og virðist sem stjónxin þar ætli að ganga að þeim dauðum með harðvít- ugum ofsóknum.

x

Straumar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.