Straumar - 01.04.1930, Síða 40

Straumar - 01.04.1930, Síða 40
34 S T R A U M A R Gagnvart þeim vandamálum dugir ekki til lengdar óákveð- ið predikunarmas, sem enginn tekur mark á. Og eg held að jafnaðarmönnum hér á landi sé holt að yfirvega það, að í afstöðu sinni til kirkjunnar mega þeir ekki fylgja í blindni þeim fordæmum, sem flokks- bræður þeirra í öðrum löndum hafa gefið. Þeir vei’ða að átta sig á því í tíma, að guðstrú og kristni eru ekki fjand- samleg eðli jafnaðarstefnunnarheldur stefna að vissu leyti að sama marki og hún. Og jafnvel þó að þeir sannfæríst ekki um að þetta er rétt, og hyggi trúarbrögðin hindrun á vegi þeirra, þá verða þeir þó að horfast í augu við þá staðreynd, að þó að þeim takizt að ryðja um koll þjóð- kirkju íslendinga, getur þeim aldrei tekizt að útrýma trúarbrögðunum, því að sannindi þeirra eiga sér svo djúpar rætur í trúarreynslu manna, að þau verða aldrei upprætt hvorki með illu eða góðu. Sagan sýnir það svo greinilega, að allar tilraunir í þá átt hafa haft öfugan árangur. Þetta munu Rússar bráðlega sanna, og ekki þyk- ir mér ólíklegt, að ofsókn þeirra á hendur trúarbrögðun- um, ef þeim heldur áfram, verði fyrsta verkalýðsríki jarð- arinnar að falli, og þykir mér það þó illa farið. Eg vona þess fastlega, að íslenskir jafnaðarmenn láti sig aldrei henda þá heimsku. Einar Magnússon. Trúmál og kirkja á Rússlandi. Eftir að Sovjetstjórnin hófst til valda í fjörbrotum rússneska keisaradæmísins 1917, tók brátt að blikna feg- ursti fífill hinnar „heilögu rétt-trúuðu kirkjuu á Rússlandi. Hafði sú kirkja, eins og grísk kaþólska kirkjan víðasthvar er, verið einkum fræg fyrir þröngsýni og afturhaldsanda, og því reynzt keisaravaldinu hin öflugasta hjálparhella með því að viðhalda fáfræði og hjátrú lýðsir • innræta

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.