Straumar - 01.04.1930, Page 59
STRAUMAR
{.8
hver hann annars er, vita raenn ekki. Sumir geta þess
til að hann sé Jóhannes öldungur í Efesos. Þó er talið
ólíklegt, að höf. þeirra sé hinn sami og höf. Jóh. guðspjalls
og 1. Jóh., en líklegt, að hann sé af sama flokki og e. t.
v. sá, er reit Opinberunarbókina; en hann er ekki talinu
sá sami og höf. guðspjallsins og 1. Jóh.
En alt eru þetta tilgátur, studdar meira og minna
líklegum rökum.
Júdasarbréf. Þetta stutta bréf er síðasta bréf N.
T. Það er ritað til að vara við villukennendum, en þeir
eru hinir sömu og getið er um í 2. Pét. eins og áður er
sagt. Bréfið er þrungið mikilli alvöru, er einna kjarnorð-
asta og strangorðasta rit N. T. Samkvæmt áður sögðu um
2. Pétur. mun Jud, skrifað nokkru á undan því, eða á
fyrsta t'jórðungi 2. aldar.
Höfundur bréfsins kallar sig „Júdas, þjón Jesú KristS
og bróður Jakobsu. Heflr hann því verið talinn bróðir
Jakobs, höf. Jakobsbréfs, kaþólska kirkjan telur hann því
vera Judas Taddeus postula, bróður Jakobs Alfeussonar,
en mótmælendur .Tudas bróður Jesú og Jakobs safnaðar-
stjóra í Jerúsalem, (sbr. Mark. 6, 3). En tímans vegna
getur hvorugur þeirra verið höf., því að báðir hljóta þeir
að vera dánir, um 120, og auk þess mælir bréfið sjálft á
móti því að höf. sé samtímamaður postulanna, því að
hann lítur til baka til þeirra. En sjálfsagt hefir höf. heit-
ið Júdas, og má vel vera að hann hafi verið bróðir Jak-
obs, sem reit Jak. eða þá bróðir einhvers Jakobs, sem
var þektari maður en Júdas sjálfur. Lika getur orðunum
„bróðir Jakobs“ hafa verið bætt við seinna til að ættfæra
höf. En um þetta verður ekkert vitað.
Bréf Jakobs, Péturs, Jóhannesar og Júdasar eru köll-
uð almennu bréfin.
0 p i n b e r u n a r b ó k i n er síðasta (27.) rit N. T.
Hún hefir verið kölluð spádómsrit þess og má það heiti
til sanns vegar færast, þegar þess er gætt, að leggja að-
eins þá merkingu inn í orðið ao s p á, að segja fyrir ó-
orðna hluti. Því að bókin fjallar aðallega um þá hluti sem
verða munu. Er liún að því leyti ólík spádómsritum G.