Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 94
JAPANSKIR DflGflR
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu:
Japanir afar orðheldnir
Viðskipti Heklu við Japan standa
á gömlum merg en þau hófust
fyrir um 30 árum þegar fyrir-
tækið hóf að flytja inn bíla frá Mitsu-
bishi fyrirtækinu. í viðbót við bíla-
innflutninginn, sem er talsverður
þar sem Mitshubishi er með um
20% markaðshlutdeild á íslandi, flyt-
ur Hekla inn virkjanir frá Mitsubishi
og einnig frystigáma. „Við seljum
allar gerðir bíla frá Mitsubishi, allt
frá litlum fólksbílum upp í rútur,“ segir Sigfús Sigfússon, for-
stjóri Heklu. „Pajero jeppinn hefur einnig verið vinsælastur
jeppa hér um árabil. Mitsubishi fyrirtækið er gríðarlega
stórt í Japan. Það framleiðir allt mögulegt, rekur skipa-
smíðastöðvar, smíðar flugvélar, framleiðir bjór og myndavél-
ar og stendur fyrir banka-
starfsemi auk þess
sem það stundar olíu-
vinnslu. Það er varla
til það svið sem fyr-
irtækjasamsteyp-
Japönsku Mitsubishi bílarnir frá Heklu
eru meö um 20% markaöshlutdeild á
Islandi. En Mitsubishi er talsvert meira
en bílar. Hekla hófvidskipti vib Japani
fyrir um 30 árum.
Efitir Vigdísi Stefánsdóttur
Sigfús Sigfusson, forstjóri Heklu: „Japanir eru traustir og efpeir segja eitthvað
þá stendur það eins og stafur á bók. I rauninni er engin þörf á pví að skrifa
undir samninga við þá. Orð duga. “ FV-mynd: Geir Olafsson.
an kemur ekki nálægt. Þess má svo
geta til gamans, þó svo að við kom-
um ekki nálægt því að neinu leyti, að
Mitsubishi kaupir talsvert af loðnu
hér á landi og flytur út til Japans.“
Vörumerki Mitshubishi eru þrír
demantar og heitir „the three
diamonds". Upphaflega táknaði það
skrúfublöð á skipi og var hannað
þegar Mitsubishi rak skipasmíða-
stöð í Nagasaki en þróaðist smám
saman í það sem það er í dag og má sjá það hvert sem litið
er í Japan,
Þótt Hekla sé í dag rótgróið bílainnflutningsfyrirtæki og
fæstir sjái annað fyrir sér en bíla þegar hugsað er til þess, þá
hóf það feril sinn með því að flytja inn ávexti frá Spáni. Eftir
seinni heimsstyrjöldina breyttust áherslurnar og fyrirtækið
tók að flytja inn vélar og bíla, fyrst og fremst frá Bandaríkj-
unum og Evrópu, og hefur alla tíð verið leitast við að kaupa
inn þekktasta og besta vörumerkið í hverjum geira fyrir sig.
„Upp úr 1970 fórum við að líta í kring um okkur og þá
lágu saman leiðir okkar og Mitsubishi," segir Sigfús. „Við
það fórum við inn i allt annað viðskiptaumhverfi en við vor-
um vanir því Japanir vinna á gjörólíkan máta. Þeir taka sér
góðan tíma í ákvarðanatökur og vinna mikið í hópum. Þeir
eru mjög nákvæmir og það er að mínu mati alveg einstak-
lega gott að vinna með þeim. Þeir eru traustir og ef þeir segja
eitthvað þá stendur það eins og stafur á bók og í rauninni er
engin þörf á því að skrifa undir samninga við þá. Orðin
duga. Því miður er ekki sömu sögu að segja um ýmsar
aðrar Austurlandaþjóðir sem sumar hverjar eru ára-
tugum á eftir Japönum. Þótt gengi jensins hafi á
stundum leikið okkur grátt þá hafa þeir alltaf sýnt
okkur skilning og komið til móts við okkur og þannig
sýnt að þó svo að Island sé lítill markaður á þeirra
mælikvarða þá skiptum við þá máli og þeir vilja
gjarnan halda við þessum viðskiptasamböndum.“
Sigfús segir það mikið gæfuspor að opna sendi-
ráð í Japan og japanskt sendiráð hér á landi. „Það
er víst að viðskipti milli landanna eiga eftir að
aukast í kjölfarið og líklegt að við munum sjá
fleiri ferðamenn frá Japan hér á landi en þeir
hafa mjög gaman af því að koma hingað. Þeir
hafa líka mikla ánægju af því að borða góðan
mat, t.d. hvalkjöt ef það fæst, og þar er vís veg-
ur til að koma á góðum tengslum.“ H!i
Heimasíða Mitsubishi er: http://www.mitsubishi-
motors.co.jp/inter/entrance.html en þar er að finna mik-
ið af upplýsingum, bæði varðandi sögu fyrirtækisins, upp-
byggingu og annað. Og auðvitað er þar hægt að sjá nýjustu
bílana og umsagnir um þá. Um að gera að notfæra sér nýj-
ustu tækni og skoða það sem Netið býður upp á!
94