Frjáls verslun - 01.02.2001, Side 9
Starfsfólk Planet City, frá vinstri: Gnran Micic einkaþjálfari, Karen Ósk Óskarsdóttir snyrtifræðingur, Linet Rosenlundh snyrtifræðingur, Gunnar Már
Sigfússon, framkvæmdastjóri Planet City, Sigríður Guðjónsdóttir snyrtimeistari, Berglind Alfreðsdóttir snyrtifræðingur og Jólía Þorvaldsdóttir,
starfsmaður í móttöku. Myndir: Geir Ólafsson
Einkaþjálfun, snyrtistofa og heilsulind
Planet City höfðar til fólks sem kann að meta þjónustu, þægindi og þá upplifun
sem viðskiptavinir fá út úr stöðinni sem heilsulind, snyrtistofu og allsherjar
Kkams- og heilsuræktarstöð. Mikið er lagt upp úr því að veita hverjum og einum
persónulega þjónustu. Til að ná árangri er einkaþjálfun án nokkurs vafa besta
leiðin. Allir viðskiptavinir hafa sinn einkaþjálfara. í fyrstu heimsókninni tekur
einkaþjálfari á móti viðskiptavininum og gerir æfingaáætlun með þarfir hans og
markmið í huga. í hverri heimsókn fylgir hann svo viðskiptavininum í gegnum
æfinguna og aðstoðar hann þannig við að ná markmiðum sinum.
Á Planet City og Planet Esju eru fyrsta flokks snyrtistofur þar sem boðið er
upp á alls kyns meðferð fyrir líkama og andlit. Boðið er upp á Spa meðferð,
líkamsinnpökkun og skrúbb, nudd, andlitsbað og hand- og fótsnyrtingu.
(heilsulindinni er einstök slökunaraðstaða. Boðið er upp á frábæran nudd-
pott, gufuböð, slökunarbekki og einstakt andrúmsloft. Nuddarar eru alltaf á
staðnum á opnunartíma.
Sælkeramatur á Atlantic
Á Atlantic er á boðstólum heilsufæði sem sniðið er að þörfum nútímamannsins.
Þar er opið frá morgni til kvölds og hægt að fá sér heilsusamlegan en Ijúffeng-
an mat sem drykk. Hollustan er í fyrirrúmi við eldamennskuna og fyrsta flokks
hráefnið er eins ferskt og hollt og mögulegt er. Atlantic býður upp á sælkeramat
sem hentar vel fyrir heilsuna, bæði kjöt og fisk og
heiisudrykki af ýmsu tagi.
Misskilningur
Heilsurækt í gullstöðvum Planet Pulse er ekki dýr. Hjá
öðrum stöðvum kostar einkaþjálfun um 30 þúsund
krónur á mánuði auk þess sem greiða þarf sérstakt
gjald til viðkomandi stöðvar. Hjá Planet Pulse gullstöðv-
unum kostar mánuðurinn í einkaþjálfun 16.500 krónur
og er innifalinn ótakmarkaður aðgangur að stöðinni.
Gullkorthafar hafa auk þess ótakmarkaðan aðgang að
öllum stöðvum Planet Pulse en fyrir utan Planet Esju
eru það Planet Gym, Planet Pump og Planet Sport.
Planet City er heilsulind, snyrtistofa og allsherjar líkams- og heilsu-
ræktarstöð með frábæra aðstöðu af ýmsu tagi, t.d. gufubað og nudd-
potta þar sem viðskiptavinir geta látið þreytuna líða úr sér.
Spa ferðir til íslands
Hjá Planet City er mikil áhersla lögð á sambandið við erlenda ferðamenn og gott
samband er við Flugleiðir, hótel og ferðaþjónust-
una almennt. Sérstakar Spa ferðir hafa verið
markaðssettar af Flugleiðum í tvö ár og hafa
gengið mjög vel enda er ísland kjörið „Spa-land"
með sínu hreina lofti, hugmyndaríka fólki og
ómengaða mat.
JRIanet CJ'/ty
Planet City
Austurstræti 8, Reykjavík.
Sími: 511 1640-Fax: 511 1621
Netfang: planetpulse@planetpulse.is
Veffang: www.planetpulse.is
Gjafakort
Hjá heilsuræktarstöðvum Planet Pulse er boðið
upp á gjafakort af ýmsu tagi og eru þau mjög
eftirsótt. Viðskiptavinurinn getur valið um gjafa-
kort í nudd, meðferðir, andlitsþöð og dekur.
Notalegri gjöf er vart hægt að hugsa sér. Sli
9