Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 39
SVILARNIR í KflllFORNÍU
Sigurður Gísli
Fasteignir Þyrpingar sem er að stærstum hluta í eigu
Sigurðar Gísla og systkina hans:
1 Húsnæði Ikea í Holtagörðum er í eigu Þyrpingar.
2 Verslanamiðstöðin Spöng í Borgarholti. Þar er verið að byggja heilsu-
gæslustöð.
3 Verslanamiðstöðin við Eiðistorg á Seltjarnarnesi. Þyrping keypti
þrjár neðstu hæðirnar afLýsingu.
4 Fasteignin Hótel Esja er í eigu Þyrpingar. Með fyrirhugaðri viðbygg-
ingu verður hótelið stærsta hótel landsins.
Sigurður Gísli sló til og keypti Kerið með öðrum þegar það tœkifæri
kom upp á borðið fyrir nokkrum árum.
5 Tœknival seldi Þyrpingu fasteignir sínar í Reykjavík og á Akureyri og
leigir þær svo aftur.
G Aco húsið og Tónabær við Skaftahlíð.
7 Húsnæði Hótels Loftleiða telst til fasteigna Þyrþingar.
8 Til greina kemur að Þyrping stækki Kringluna með því að reisa stór-
an turn við Skeljungsstöðina.
9 Þrjár 16 hœða blokkir verða byggðar í 101 Skuggahverfi í samvinnu
við Eimskip, allt að 250 íbúðir, bílageymslur, verslanakjarni og skrijstofu-
húsnœði fyrir um fimm til sex milljarða króna.
10 Fornleifauppgröftur hefur átt sér stað á horni Túngötu ogAðalstrœt-
is. Fimm stjörnu hótel verður reist þar sem talið erað bær Ingóljs Arnar-
sonar hafi staðið.
Brennandi áhugamál Hugmynd Sigurðar Gísla Pálmasonar
og bróður hans, Jóns, um Þekkingarhús og frumkvöðlastarf-
semi í Urriðakotslandi í Garðabæ hefur vakið gríðarlega at-
hygli enda hefur Sigurður Gísli lagt mikla vinnu
í að kynna hana og afla henni fylgis. Hugmyndin
er honum brennandi áhugamál og tengist af-
stöðu hans til virkjunarmála fyrir austan. Hann
vill að þjóðin fjárfesti andvirði einnar virkjunar í
menntun, ungu fólki verði beint með markviss-
um hætti í nám sem tengist tölvum, verkfræði og
tækni, búið verði til frumkvöðlasetur með „út-
ungunarstöðvum", svipuðum þeim sem eru í
Bandaríkjunum og Evrópu, og uppskeru verði
ekki vænst fyrr en eftir 20-30 ár. Þetta telur Sig-
urður Gísli að skili meiri ávinningi fyrir samfé-
lagið til langs tíma, betur launuðum störfum og
blómlegri búsetu á íslandi til framtíðar í stað
þess að unga fólkið flýi land á svipaðan hátt og
það flytur burt úr strjálbýlinu víða um landið í
dag.
Sérstakt undirbúningsfélag, fasteignafélagið Ósland hf.,
heldur utan um þessa hugmynd í dag og er það félag í eigu
þeirra bræðra Jóns og Sigurðar Gísla (50%) og ýmissa í hug-
búnaðargeiranum, t.d. Islenska hugbúnaðarsjóðsins (20%),
GoPro-Landsteina, Ólafs Daðasonar, stofnanda Hugvits, o.fl.
Fyrirhugað er að byggja hátæknigarð, sem gæti orðið tugir
þúsunda fermetra að stærð, og leigja til fyrirtækja í þekking-
ariðnaði. Gera má ráð fyrir að kostnaðurinn við slíka bygg-
ingu skipti hundruðum milljóna eða kannski frekar milljörð-
um króna og er reyndar fyrirsjáanlegt að hann verði svo mik-
ill að leitað verði til innlendra og jafnvel erlendra fjárfesta um
að koma inn í félagið ef af verður. Um þessar mundir eiga sér
stað viðræður við landeigandann, sem er Menningar- og líkn-
arsjóður Oddfellow-reglunnar, og bæjaryfirvöld í Garðabæ
og má búast við að niðurstaða í því máli skýrist í vor. Það er
því fýrirsjáanlegt að starfsemi hefjist ekki í Urriðakotslandi
fýrr en eftir a.m.k. fjögur til fimm ár.
Gullmolinn I Kerinu Sigurður Gísli eignaðist nýlega jörðina
Borgarholt á sunnanverðu Snæfellsnesi, ásamt Jóni, bróður
sínum, og er það hugsað sem sumarbústaðaland fjölskyldn-
anna. Aður hafði hann keypt Kerið í Grímsnesi með Óskari
Magnússyni, stjórnarformanni Þyrpingar, og Ásgeiri Bolla
Kristinssyni, eiganda Sautján. Þau kaup voru á þeim tíma
fýrst og fremst gerð til gamans eða, eins og einn heimildar-
manna Frjálsrar verslunar orðaði það: „Það er ekki á hverjum
degi sem mönnum gefst kostur á að kaupa Kerið.“ Gaman-
semin með Kerið hefur þó reynst gullmoli. I dag er verð á
landi á þessum slóðum á bullandi uppleið og munu þremenn-
ingarnir verja þar fé og fýrirhöfn í sumar til að bæta umhverf-
ið. Ekki rísa þar neinar byggingar. 33
Jtewuát
-setur brag á sérhvern dag!
39