Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 52

Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 52
Tekur þú óþarfa áhættu á ferðalögum erlendis? Skelfiskur er varasamur og ísmolar í drykknum - Hættan getur leynst alls staðar og því er nauðsynlegt að láta bólusetja sig gegn lifrarbólgu! Viðskiptamenn fara mikið utan og ferðast oft til landa þar sem lifrarbólga er mjög algeng og skortur er á hreinlæti. Ekki þarf nema einn smitaðan einstakling, sem t.d. uinnur í eldhúsinu á fínu ueitingahúsi, til að smit sé komið í matinn. Pað skiptir þuí miklu að uerja sig með bólusetningu áður en lagt er af stað í ferðalagið. Á ferðalögum erlendis er töluverð hætta á að smitast af ýmsum sjúkdómum, sérstaklega í framandi og fjarlægum löndum, en meðal algengustu og alvarleg- ustu sjúkdóma sem hægt er að smitast af á ferðum erlendis er lifrarbólga A og B. Lifrarbólga A smitast með mat og drykk og lifrarbólga B smitast með blóð- blöndun og líkamsvessum. Bóluefni hefur verið til um nokkurt skeið en þrátt fyr- ir það hefur tíðni nýsmitaðra ekki minnkað á Vesturlöndum á síðustu árum. Þetta má að einhverju leyti rekja til aukinna ferðalaga til landa þar sem útbreiðsla lifr- arbólgu er mikil. Lifrarbólga A er algengasti sjúkdómurinn sem herjar á ferða- langa á eftir niðurgangi og malaríu og eru íslendingar mjög næmir fyrir henni því fæstir þeirra hafa náttúrulega vöm gegn þessari veiru. Lifrarbólga B er hins veg- ar sá sjúkdómur sem aukist hefur hvað mest meðal evrópskra ferðamanna. Lifrarbólga A er í flestum tilfellum ekki lífshættulegur sjúkdómur en hún leið- ir til mikillar bólgu í lifur og getur það tekið sjúklinginn langan tíma, jafnvel hálft til eitt ár, að ná fullri heilsu. Það skiptir því miklu að forðast smit. Hægt er að láta bólusetja sig með Havrix gegn lifrarbólgu A fyrir ferðalagið á næstu heilsu- gæslustöð. Eftir tvær bólusetningar er komin a.m.k. 20 ára vörn gegn lifrar- bólgu A. Bólusetning gegn lifrarbólgu B þarf að gera einum mánuði fyrir brott- för og eftir þrjár bólusetningar næst a.m.k. tíu ára vörn gegn henni. Einnig er hægt að fá samsett bóluefni, Twinrix, sem veitir vörn gegn bæði lifrarbólgu A og B. Bólusetningunum fylgir handhægt skírteini þannig að auðvelt er að sjá hvenær á að koma í viðhaldsbólusetningar. Hættan á smiti eykst til mikilla muna ef dvalist er meðal innfæddra, farið í safaríferðir, gönguferðir eða lestarferðir og þegar dvalist er lengi í framandi landi. Það er því fyrir slík ferðalög sem mest áríðandi er að láta bólusetja sig. Flensulík einkenni Lifrarbólga A er oftast tengd við fátæk ríki, lélegt hreinlæti og skort á hreinu vatni. Helstu smitleiðir eru með vatni og saur. Lifrarbólguveiru A er að finna í menguðu vatni, í ávöxtum og grænmeti sem hefur verið skolað með menguðu vatni, ísmolum í drykkj- um, ósoðnum eða snöggelduðum mat, eins og t.d. skelfisk. Alls staðar þar sem hreinlæti er ábóta- vant og hreint vatn kemst í snertingu við skólp er hætta á smiti, t.d. á baðströndum sem liggja ná- lægt frárennsli. Rétt er að taka fram að þeim til- fellum fjölgar stöðugt þar sem ekki er fyllilega Ijóst hvernig sjúkdómurinn hefur smitast, m.a. vegna þess hve langur tími getur liðið frá því smitið á sér stað og sjúklingurinn veikist. Einkenni sjúkdómsins koma ekki fram strax og því getur smitið borist áfram áður en sjúkdómurinn uppgötvast. Útbreiðsla er mikil meðal barna sem síðan geta smitað eldri systkini, foreldra og vini. Meðgöngutfmi sýkingarinnar er um það bil einn mánuður. Einkennin verða fyrst eins og um flensu sé að ræða. Sjúklingurinn fær hita, honum líður illa og matarlystin minnkar. Eftir veikindi í um viku koma fram hefðbundin einkenni lifr- arbólgu, þvagið verður dökkleitt, húðin gulleit, hvítan í augum gulnar og sjúkling- urinn fær verki í kvið. Ekki er til nein meðferð við lifrarbólgu A og getur það tek- ið sjúklinginn marga mánuði að jafna sig og ná fullri heilsu. Orsakar krabbamein Lifrarbólga B smitast við blóðblöndun og kynmök. Meðgöngutiminn er 2-6 mán- uðir og minna einkennin á flensu með hita, ógleði og uppköstum, líkt og gildir um lifrarbólgu A. Þriðjungur smitaðra fær gulu. (Mið-Afríku og Suðaustur-Asíu, þar sem útbreiðslan er mikil, telst þessi sjúkdómur til barnasjúkdóma því að þar smitar móðir barn sitt í fæðingu eða á fyrstu æviárum þess. Lifrarbólga B er mjög algeng í Suðaustur-Asíu þar sem um 20 prósent mannfjöldans smitast á hverju ári og næstum allir hafa einhvern tímann sýkst af sjúkdómnum. Talið er að alls hafi yfir 2000 milljónir manna sýkst af lifrarbólgu B í heiminum í dag. Einn af hverjum tíu til tuttugu verða langvarandi smitberar og geta smitað aðra með blóði og við kynmök. Börn veikjast sjaldan af þessum sjúkdómi og það eru helst þau sem verða langvarandi smitberar. Um fjórðungur langvarandi smitbera fá síðar á ævinni skorpulifur eða krabbamein í lifur og ger- ir þetta lifrarbólgu B að einum helsta orsakavaldi krabbameins í heiminum, næst á eftir reykingum. Hættan á lifrarbólgu B er mest við kynmök án smokka, götun á húð, nál- arstungur, húðflúr og meðferð á heilbrigðisstofnun þar sem notaðar eru vörur sem innihaida blóð. Tíðni lifrarbólgu á íslandi I íslenskri rannsókn kemur fram að 49 einstaklingar hafa greinst með lifrarbólgu A á árunum 1986-1989 og er talið að tæplega helmingur þeirra hafi smitast á ferðalögum erlendis. Ekki er vitað hve algengur þessi sjúkdómur er hér á landi í dag, en búast má við að þeir séu mun fleiri sem smitist á ári hverju en var fyrir rúmlega áratug síð- an. Þá verður að hafa í huga að sjúkdómurinn verð- ur stöðugt algengari erlendis, ekki síst í löndum þar sem hann hefur verið tiltölulega fátiður, eins og t.d. í Bandaríkjunum og öðrum löndum þar sem innflytjendur frá fátækum löndum eru margir. Á síð- ustu árum hafa að meðaltali verið greind 20-50 ný tilfelli af lifrarbólgu B á ári hverju. III GlaxoSmÍthKline Þverholti 14, Reykjavík., Sími: 530 3700 - Fax: 530 3701. www.gsk.is - www.gsk.com - worldwidevaccines.com. Netfang: hr27168@gsk.com 52 AUGLÝSINGAKYNNING
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.