Frjáls verslun - 01.02.2001, Síða 55
VIÐTAL VIÐ .JÚN/\:J U, JUÍ'NNJÍJ
Samningar og samningatækni eru umræðuefni sem Jónasi er hugleikið. En hvað
þarf í samningaleikinn, eins og hann kallar hann? „Það gildir að vita hvenær hægt
sá að sækja, hvenær sé best að bíða og þá líka hvenær sá best að mæta.“
Undanfarið ár hefur Jónas unnið hjá fyrirtæki í eigu Morse Group, Red Creation, í
London en það er „venture management" fyrirtæki. „Við, þessir tíu, erum eins og
hirðingjar sem flökkum úr einu fyrirtæki í annað, höfum hvergi fast skrifborð og
erum með allt í ferðatölvunni og töskunni, engir pappírar."
g olía og vatn
Jónas hætti í Náttúru, þegar hann var 21 árs, þá orðinn fjöl-
skyldufaðir, búinn að eignast konu og dóttur. „Leiktíminn var
búinn,“ segir hann með bros á vör. Honum bauðst að reka
tískuverslunina Adam, svo ekki yfirgaf hann ungmennakúlt-
úrinn með öllu, og þar vann hann á annað ár.
„Sem verslunarstjóri byrjaði ég að ferðast,“ segir Jónas.
„Um þetta leyti byrjaði ég líka að gera sjónvarpsþætti, gerði
þátt þar sem ég söng Burt Bacharach-lög og það opnaði dyrn-
ar inn í sjónvarpið. Eg fór að gera skemmtiþætti og þætti með
Ríó-tríóinu. Eg var með spurningaþættina „Ugla sat á kvisti" í
þrjú ár, en fékk nóg af því á endanum. Það var um of að vera
mikið á skjánum í litlu landi. Það var sama hvar ég var. Alltaf
var einhver sem vildi ræða þættina og verst var það á
skemmtistöðum. Það var aldrei friður, alltaf áreiti. Þótt ég
fengi nóg af því að vera á skjánum vildi ég gjarnan starfa hjá
Sjónvarpinu, en Jón Þórarinsson, þáverandi dagskrárstjóri,
hafði hvorki stöðu né vildi ráða mig, heldur hvatti mig til að
fara út í nám. Eg skildi það ekki þá, en er þakklátur honum
núna.“
Áhugamálin voru áfram á þessu sviði og Jónas, Sigurjón
Sighvatsson, sem nú er kvikmyndaframleiðandi í Los Angel-
es, og Jón Þór í Saga Film stofnuðu hljóðupptökuver saman,
Hljóðrita. Eftir að hafa unnið við hljóðupptökur í á fimmta ár
dreif Jónas sig með ijölskylduna til Los Angeles í nám í dag-
skrárgerð fyrir útvarp og sjónvarp. „I raun hafði bæði söngur-
inn og sjónvarpsvinnan snúist um dagskrárgerð. Að setja
saman efni, sem fólk vildi hlusta á,“ segir hann hugsi. Það var
því ákveðin lógík í þessu framhaldi. A meðan á náminu stóð
hélt Jónas alltaf sambandinu við Island, tók meðal annars upp
plötur, sem hjálpaði til að framfleyta ijölskyldunni. Helga
Benediktsdóttir, kona Jónasar, fór einnig í nám, lærði arki-
tektúr. Arið 1985 var dóttirin komin á unglingsárin og þá
þurfti að gera upp við sig hvort fjölskyldan ætti að ílengjast
vestra eða gefa dótturinni möguleika á að snúa aftur til Is-
lands og varð það ofan á. „Það var fínt að koma heim aftur,“
segir Jónas.
Fyrsti starfsmaður Stöðvar 2 Um þær mundir sem Jónas
flutti heim var nýbúið að stofna Stöð 2. „Eg las um stofnunina
í Tímanum á leiðinni heim,“ rifjar hann upp, en það var þó
ekki hjá þessu nýja fýrirtæki þeirra Jóns Ottars Ragnarsson-
ar, Hans Krisjáns Árnasonar og Olafs H. Jónssonar sem Jónas
Eftir ár í „venture management" hjá Red Creation er Jónas alvarlega að
hugleiða að taka enn eitt skrefið og nota kraftana í þágu íslenskra fyrirtækja
sem þurfa að komast á alheimsmarkað, þar á meðal að koma Latabæ
Magnúsar Schevings út í heim.
55