Frjáls verslun - 01.02.2001, Qupperneq 58
VIÐTAL VIÐ JÓNflS R. JONSSON
„Við Jón Óttar vorum eins og olía og vatn og það fór allt í loft upp á milli okkar. En
það er synd að hann skyldi fara með svo litla peninga út úr Stöð 2. Jón Óttar er klár
og þegar hann kveikir á sjarmanum á hann auðvelt með að komast upp með það
sem hann vill.“
„Eg ákvað því að hringja íþessa þrjá þarna á Stöð 2. Eg hitti þá, eftir
klukkustund var ég ráðinn og byrjaði að vinna daginn eftir. Eg var
fyrsti starfsmaður Stöðvar 2. “
FV-myndir: Sigrún Davíðsdóttir
eðlilegt og allt í lagi að það sjái á mönnum vín. Annars staðar
í London er þetta að hverfa. A Italíu og Spáni má ekki sjást á
manni vín, í Frakklandi eru þeir aðeins afslappaðri. I Banda-
ríkjunum sérðu einfaldlega ekki lengur að menn fái sér vín
með hádegismatnum, aðeins vatn. Hluti af samningaleiknum
er svo að átta sig á hvers virði verkefnið sé fyrir viðsemjand-
ann, hvað hann þurfi að fá frá þér og hvað þú ferð fram á og
hvenær. Tímasetningin skiptir öllu máli. Og af því þetta er
gjörólíkt eftir löndum er samningaleikurinn svo spennandi.
Ég gæti haldið endalaust áfram?“
Santruni Nets og sjónvarps óhjákvæmilegur Eftir verkefnið
á Ítalíu hafði Jónas hug á að kynnast Netinu, enda ekki í vafa
um að sjónvarpið og Netið muni renna saman, hvernig sem
útfærslan verði. Nethold var selt Canal+. „Uppbyggingin á
Ítalíu hafði verið skemmtileg og nú var tækifæri til að líta í
önnur horn,“ segir Jónas. Asamt tveimur öðrum setti Jónas
upp netfyrirtæki í Stokkhólmi og starfaði þar í eitt ár. „Það var
fín reynsla, gaman að söðla um og prófa eitthvað nýtt, en ég
var jafnframt að nýta fýrri reynslu í að selja vöru.“ Jónas og
félagar hans seldu svo fyrirtækið og réðu sig til CBS
Sportsline, sem þá var að setja upp evrópska arminn á
sport.com. Jónas sá um að setja upp aðalstöðvarnar í Bret-
landi og útibú í Frakklandi, Þýskalandi, á Spáni og Italíu og
hélt utan um alla samninga, sem fyrirtækið gerði.
Eftir þessa törn var Jónas svo „hausaveiddur" fýrir ári í
starfið, sem hann hefur sinnt fram að þessu hjá Red Creation,
„venture management“ fýrirtæki í eigu Morse Group. Morse
Group er stærsti innflytjandi í Evrópu á tölvum og hugbúnaði,
selur og dreifir merkjum eins og Sun, Microsoft og Hewlett
Packard. Fyrirtækið veltir 750 milljónum punda á ári og þar
vinna um eitt þúsund manns. Um 800 starfa við sölu og þjón-
ustu tölvuvara, 150 starfa við rekstarráðgjöf og svo er það
Red Creation, þar sem vinna tíu manns. „Við, þessir tíu, erum
eins og hirðingjar, sem flakka úr einu fyrirtæki í annað, höf-
um hvergi fast skrifborð. Allt er í ferðatölvunni og töskunni,
engir pappírar. Eftir öll ferðalögin hef ég smám saman vanist
á að þurfa ekki svo mikið. Ég var með ritara þegar ég byrjaði
að vinna í Hollandi en vandi mig af því á Ítalíu.“
Starfið snýst hvorki um fjármögnun né ráðgjöf í hefð-
bundnum skilningi. „Við vinnum beint með stjórn fýrirtækis-
ins. Hver um sig vinnur 3-4 daga í viku í þeim fyrirtækjum
sem við erum með í takinu og rekum fýrirtækið í raun óbeint
í 3-9 rnánuði." Sem dæmi um verkefni er að aðstoða farsíma-
lýrirtæki sem hefur fengið leyfi íýrir þriðju kynslóð farsíma til
að þróa þjónustuna, sjá fýrir óskir viðskiptavinanna, skoða
mismunandi viðskiptahugmyndir og velja úr hvað geti geng-
ið upp. Annað dæmi er tryggingarfélag, sem er bæði að
byggja upp netþjónustu og útbúa tryggingar sem beinast að
netfyrirtækjum, til dæmis gegn tjóni af völdum hakkara og
greiðslukortasvindls. Enn annað verkefni var að aðstoða upp-
finningamann við að þróa kassa við heimahús, sem geta tekið
á móti heimsendum vörum. Þetta er í stuttu máli „venture
management“.
Næsti draumur: Frá föstu starfi yfir í sjálfstætt Jónas tekur
heilshugar undir að Netið sé erfiður viðskiptavettvangur. „Og
það hefur aldrei verið erfiðara en einmitt núna, þótt við höld-
um kannski að það sé aðeins að rétta við. Það er mjög erfitt
að fá fé í ný netfýrirtæki og við sjáum mikið af góðum við-
„Páll sagði að ef menn þyrftu að ferðast á „business class“ ættu þeir samt að sitja aftur í. Nokkrum
mánuðum síðar hafði ág verið á ferð milli nokkurra staða í Evrópu á opnum miða og kom því heim á
Saga class. Daginn eftir var ég kallaður fyrir Palla, sem spurði hvort það væri rátt að ég hefði setið
fram í. Þegar ég játaði því sagðist hann verða að reka mig.“
58