Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2001, Síða 59

Frjáls verslun - 01.02.2001, Síða 59
VIÐTAL VIÐ JONAS R. JÓNSSON skiptahugmyndum og -tækifærum, sem engir peningar fást í. Yið vinnum hins vegar mest fyrir fyrirtæki sem eru þegar með rekstur en stefna á að fara líka á Netið. Verkurinn er að menn héldu að Netið væri uppspretta alls auðs og voru því alltof örir. En Netið er bara rétt í bláfæðingu, varla að með- göngutíminn sé búinn.“ I heimi áhættuflárfestinga er gjarnan talað um hve upplýs- ingar og upplýsingagreining skipti miklu máli, en á sama tíma kemur mikið af slíku efni frá bönkum og ijármálafyrir- tækjum sem eru sjálf að selja hlutabréf. Jónas tekur undir að það sé erfitt að fá áreiðanlegar upplýsingar. „Það er allt falt fyrir fé og samkrull blaðamanna og þeirra sem stunda grein- ingar er til dæmis oft bara spurning um peninga. A hinn bóg- inn er markaðurinn svo stór og menn yfirleitt svo sérhæfðir að þeir lifa í eigin heimi og skortir yfirsýn. I áhættuijármögn- un er ekki hægt að treysta á tilfinninguna, heldur aðeins á skýrslur, sem skipta þá afskaplega miklu máli. Þessa undir- búningsvinnu vantar oft þegar Islendingar koma til útlanda. Heima hafa menn yfirsýn, eru vanir að treysta á tilfinninguna, en hafa ekki sérhæfinguna og skilja þess vegna oft ekki af hveiju það þarf svona mikla upplýsingaöflun, svo þegar þeir koma út hafa þeir ekki svörin." Sem dæmi um upplýsingavinnuna nefnir Jónas að fyrir tíu manna hópinn, sem hann hefur unnið í, hafi einn lögfræðing- ur sinnt upplýsingaöflun, en nýlega var bætt við tveimur starfsmönnum. „Eg er ekki viss um að það sé skilningur heima á þessari vinnu.“ Nú hugleiðir Jónas enn eitt skrefið. „Það hefur oft verið leitað til mín með spennandi verkefni að heiman, sem ég hef sjaldnast haft tíma til að sinna. Eitt af því sem ég er með í takinu er að aðstoða Magnús Scheving við að koma Latabæ á alþjóðlegan markað. Við höfum verið að leita að réttum samstarfsaðilum til að gera sjónvarpsþætti, leiki, bækur, myndbönd, leikföng og svo framvegis. Nú eru samningar í burðarliðnum á Spáni og í Þýskalandi. Þjóð- verjarnir vilja fá tækifæri til að dreifa þessu um allan heim. Þar er stefnt á erfiðan markað, en jafnframt markað með mikla möguleika. Tekjumöguleikarnir af slíku verkefni eru meiri en nokkurn getur órað fyrir. íslensk verkefni eiga allan hug Jónasar. „Eg hef verið að vinna fyrir Pétur og Pál í útlönd- um. Nú langar mig að líta mér nær og vonandi að gera gagn fyrir landa mína,“ segir Jónas og áhuginn leynir sér ekki. En skiptir þá máli hvort er unnið fyrir Islendinga eða út- lendinga? ,Já,“ segir Jónas hiklaust. „íslendingar sem hafa búið erlendis vita að maður verður meiri Islendingur af því að búa í útlöndum. Islendingar standa hjartanu einfaldlega miklu nær en útlendingar. Þess vegna veitir það meiri ánægju að vinna fyrir Islendinga en útlendinga. Þótt maður starfi er- lendis þá er ótrúlegt hvað hugurinn leitar heim, án þess að því fylgi endilega söknuður eða heimþrá." Hugvitið er helsta auðlind íslendinga Samningatækni er dæmi um sérhæfingu, sem Jónas segir að sé vart til staðar á íslandi. „Heima hafa menn almennt ekki tækifæri til að æfa sig í samningatækni á alþjóðavettvangi. Menn skreppa á sýn- ingar, hafa samband hér og þar, en athyglin er of dreifð. Þess vegna vantar oftast þá æfingu sem fæst með því að stunda samningaleikinn. Hann lærist af reynslunni eins og annað. Erlendis snýst vinna oft um sérhæfingu og þá er greitt fyrir hana. Það eru aðeins örfá fyrirtæki heima sem hafa erlendan markað í alvöru. Með fullri virðingu fyrir íslensku viðskipta- lífi þá erum við eyja og sökum ijarlægðar eru menn þar oft ekki vanir stöðugum samskiptum í jafn ríkum mæli og lönd- in á meginlandinu, þótt það séu til góðar undantekningar. Tækifærin erlendis eru svo miklu meiri ef það er til staðar þolinmæði og mikið Ijármagn til að fylgja þeim eftir.“ Vistvæni markaðurinn í Bretlandi Jónas bendir á að vistvæni markaðurinn í Bretlandi sé gott dæmi um tækifæri sem gætu verið innan seilingar. „Sá markaður óx um 40 prósent árið 1999 og aftur um 40 prósent árið 2000 og 75 prósent af öllum barnamat í Bretland er vistvænn, þótt Bretar séu annars ekki mjög matarlega sinnaðir. Gin- og klaufaveikin hefur ekki dregið úr þessum möguleikum. A þessum markaði ætti að vera möguleiki á að fá betur borgað fyrir til dæmis lambakjöt, því hráefnið vantar. Það eru engin ný sannindi að við erum alltaf að flytja út hráefni." Ferðaþjónustan er að mati Jónasar annar vettvangur tækifæra. Jónas er ekki í vafa um að viðskiptaheimurinn á Islandi sé mjög að breytast með ungum mönnum. „Hugvitið heima er svo miklu meira en gengur og gerist og það er mesta auðlind íslendinga,“ segir Jónas af sannfæringu. „Eg hef farið um all- an heim og sé þetta mjög skýrt. Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að segja þetta - eru Islendingar ekki alltaf að stæra sig af fallegustu konunum, besta vatninu og sterk- ustu karlmönnunum? - en þetta er samt satt.“ SH Einhver hafði sett plötu á fóninn og Jónas tók undir. „Þú getur sungið, viltu vera með í hljómsveit?" spurði einhver og svo hittust nokkrir strákar daginn eftir heima í stofu. Helga Benediktsdóttir, eiginkona Jónasar, er arkitekt. Þótt hún búi í London vinnur hún að verk- efnum á íslandi. Hún vann, ásamt tveimur félögum sínum, menningarverðlaun DV nýlega fyrir safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Orudis hlaup 59
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.