Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 73

Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 73
á og sér um hýsingu hugbúnaðar, eignarhald á vélbúnaði og allan almennan rekstur staðar- og víðneta. Markmið fyrirtækisins er að vera í forystu í rekstri upplýsinga- og tölvukerfa á ís- lenskum markaði og má segja að fyrirtækið hafi komið sterkt inn á markaðinn því að í því er búið að sameina þjónustumiðstöð upplýsinga- vinnslu Eimskips og tölvudeíld Flugleiða og Skyggnis ehf. sem var dótturfélag TölvuMynda. Þessar þrjár einingar þjónuðu áður um 2.450 útstöðvum í um 50 fyrirtækjum í 17 löndum og hefur Skyggnir hf. tekið við því verkefni. Styrkur Skyggnis felst því m.a. i þeim mikilvægu viðskiptasamböndum sem fyrirtækið hefur fengið í arf. „Við erum nú þegar með samninga við tæplega 50 fyrirtækí þannig að rekstrargrundvöllur fyrirtækisins er afar traustur strax í upphafi. Við byggjum ofan á þá gríðarlegu reynslu og þekkingu sem var í þessum fyrirtækjum. Að auki eigum við í samningaviðræðum við nokkur stór fyrirtæki tíl viðbótar við þessi 50 og við munum bjóða fleiri aðilum þjónustu okkar. Það er Ijóst að það er stærðar- hagkvæmni í þessum rekstri, sem dæmi um það má nefna að við sjáum núna um regnhlífainnkaup á öllum aðföngum varðandi tölvukerfi og í því sjáum við strax S K Y G G N I R Skyggnir hf., Holtasmára 1, Kópavogi. Sími: 575 6100 — fax: 575 6110- þjónustuborð: 575 6160 Veffang: www.skyggnir.is • Netfang: postur@skyggnir.is töluverða hagræðingu. Við sjáum einnig um inn- kaup á fjarskiptaþjónustu og þar kemur aftur að stærðarhagkvæmninni. Jafnframt getum við boðið fyrirtækjum upp á mjög hagstæða fjár- mögnun í krafti stærðar okkar,“ segir Svavar. Hvaða þjónusta? Skyggnir veitir fyrirtækjum heildarþjónustu í rekstri upplýsingakerfa, þ.m.t. vélbúnað, hug- búnað og samskiptalausnir, bæði innan fyrirtæk- is og utan. Áhersla er á skilvirka þjónustu um sérstakt þjónustuborð, á daglegan rekstur kerfanna, hýsingu hugbúnaðar, kerfisveitu (ASP) ásamt umsjón og rekstri netkerfa. Skyggnir kappkostar að tryggja öryggi í rekstri kerfanna og mun bera ábyrgð á rekstri þeirra í samræmí við þjón- ustumarkmið sin. Til þess að tryggja öryggið sem best mun fyrirtækið sjálft eiga sem mest af þeim búnaði sem er (rekstri. Við uppbyggingu fyrirtækisins er haft að leiðarljósi að það verði áhugaverður samstarfsaðili alþjóðlegra fyrirtækja og stefna forsvarsmenn að því að byggja upp alþjóðlegt samstarfsnet til að tryggja hnökra- lausa þjónustu víða um heim. Lögð verður áhersla á að gera formlega samninga þar sem þjónustan er skil- greind nákvæmlega en í stuttu máli má segja að áhersla verði lögð á það að allur vél- og hugbúnaður verði í eígu Skyggnis og að fyrirtækið þjóni viðskiptavinum gegn föstu, mánaðarlegu gjaldi. Aðkeypt rekstrarþjónusta hefur marga kosti í för með sér. Skyggnir mun veíta viðskiptavinum sínum þjónustu um sérstakt þjónustuborð sem verður opíð allan sólarhringínn allt árið. Skyggnir tekur að sér að sjá um dag- legan rekstur og hýsingu upplýsingakerfa, t.d. póstkerfa, skrifstofukerfa og við- skiptakerfa. Með rekstri víðneta, sem tengja saman staðarnet viðskiptavina, er hægt að tryggja hnökralausan aðgang að gögnum og kerfum. Fyrírtækið mun sjá um rekstur á öryggiskerfi, aðgangsbúnaði og eldveggjum. Mikil áhersla verður lögð á að afrita gögn og kerfi reglulega og verður neyðaráætlun til staðar. Skyggnir mun sjá um uppsetningu, breytingar og tilfærslu á útstöðvum, tæknilegan rekstur síma- og gagnasambanda og sjá um notendabúnað, símtæki o.fl. Kaup á búnaði, útboð og öfl- un búnaðar, samningar við birgja, eftirlit með afhendingu og reikningum verður á höndum Skyggnis og mun fyrirtækið jafnframt sjá um uppsetningu á aðgangi not- enda að einstökum kerfum auk reglubundinnar endurnýjunar. Kópauogi í vor. Frá vinstri: Ómar Jósepsson, Svavar G. Svavarsson, Kristján Leifsson, Sigmund Leui Uarðarson, Heiðar Karlsson, Sigurður Björnsson, Andrés Hallgrímsson, Kristmann Ómarsson, Uilhjálmur Bjarnason, Ingólfur Bragason, Þorkell Guðjónsson, Tryggvi Tryggvason, Þorgeir Pálsson og Þór Ingólfsson. 73 EE—13
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.