Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2001, Side 74

Frjáls verslun - 01.02.2001, Side 74
ARI SKÚLASON í YFIRHEYRSLU Ari kveður Ari Skúlason hefur kvatt ASI eftir um 17 ára starfog rádist til starfa sem framkvæmdastjóri hjá Aflvaka, fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar. Hann segir vanda / ASI meóal annars þann að allt ofmörgum sé ná- kvæmlega sama um ASÍ og hvað þar sé að gerast. Hann er hér í yfirheyrslu Frjálsrar verslunar. Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson Ymsar raddir hafa gagnrýnt að þú í starli framkvæmda- stjóra ASÍ hafir boðið þig fram til forseta ASÍ á móti Grétari Þorsteinssyni! Hverju svarar þú þessari gagnrýni? „Eg hafði ákveðið það fyrir nokkru að hætta starfi mínu sem framkvæmdastjóri ASI þar sem ég var ósáttur, og hef verið lengi, við starfshætti og ýmsar aðferðir og fannst að við ættum að tala miklu snarpari og skýrari röddu og ég hef einnig verið talsmaður þess að hætta þessu landssambandaskipulagi. Það gekk greinilega hægt fyrir sig að breyta því. Eg tilkynnti því for- setum sambandsins það fyrir um það bil ári að ég myndi hætta störfum efdr þing nema því aðeins að mjög miklar og jákvæðar breytingar ættu sér stað. Þegar leið á sumarið fóru menn úr for- ystunni síðan að hafa samband við mig og spyrja hvort ég hefði ekki áhuga á því að bjóða mig fram til forseta og þetta jókst eft- ir því sem þingið nálgaðist. Það endaði svo á því að ég ákvað að gefa kost á mér. Hins vegar gerðist það að margir þeirra sem höfðu hvatt mig til þessa studdu mig ekki og stórir aðilar, sem höfðu fullvissað mig um að þeir myndu ekki skipta sér af barátt- unni milli mín og Grétars, stóðu ekki við sitt. Þeir höfðu sumir veruleg afskipti þannig að það fór svo að ég tapaði kosningunni. Eg virði hins vegar skoðanir manna og niðurstöðu þingsins og þar sem ég hafði ákveðið að fara í burtu hvort sem var leitaði ég mér að öðru starfi, sagði upp og fór.“ Af hverju fórstu ekki strax eftir kosningarnar? „Einfaldlega vegna þess að kjörinn forseti, Grétar, bað mig, strax eftir kosningarnar á þinginu, um að vera áfram eða doka aðeins við og þegar við töluðum saman að þinginu loknu ítrek- aði hann þessa beiðni og bað mig að vera með sér og vinna með sér aðeins lengur. Hann sagðist myndu taka mið af þeirri gagnrýni sem ég hafði komið með og hann taldi að við mynd- um ná því að vinna vel saman. Eg gekkst inn á þetta en svo veiktist Grétar og hefur verið mikið í burtu en á sama tíma hafa aðrir komið að og ekkert orðið úr þeim áætlunum sem við Grétar höfðum rætt. A þessum tíma varð ég einnig fljótlega var við að það hafði myndast þrýstingur frá öðrum í hreyfingunni um að ég ætti að hverfa og þegar ég komst að því um miðjan janúar að sá bolti var farinn að rúlla þá sá ég að útilokað væri að vinna áfram við slíkar aðstæður." Hvar liggja að þínu mati helstu veikleikar og styrkleikar ASI? .Alþýðusambandið er fyrst og fremst samband sex landssam- banda. Innan landssambandanna eru mörg verkalýðsfélög og valdið liggur fyrst og fremst hjá þeim. Félögunum hefur að vísu fækkað mjög mikið upp á síðkastið og þau sameinast og orðið hafa til nokkur stór og öflug félög, t.d. Efling, hér á höf- uðborgarsvæðinu. Uti á landi eru líka að verða til sífellt stærri félög sem þýðir um leið að hægt er að gera meira, veita félags- mönnum betri þjónustu og verða sýnilegri. Sú þróun er á ágæt- um stað og það gengur vel að styrkja þær einingar. Hins vegar eru landssamböndin mörg hver mjög veik og í raun og veru má segja að stærstu samböndin, Verkamanna- sambandið, sem nú er reyndar orðið breytt, og Landssamband verslunarmanna virki alls ekki sem sambönd. Þetta er t.d. sér- staklega augljóst í tilviki Landssambands verslunarmanna þar sem eitt félag, VR er um 3/4 af landssambandinu og ræður því sambandinu í raun og veru. VR sér alfarið um öll sín mál sjálft og því má segja að Landssambandið sé eiginlega skúffa hjá VR. Það eru ekki nema tvö til þijú sambönd sem virka eins og landssambönd ættu að gera og má þar sérstaklega nefna Raiiðn- aðarsambandið, sem er að mínum dómi fyrirmyndar landssam- band í starfi. Það hefur vald og umboð til að gera nær alla hluti í nafni félaganna, t.d. að gera samninga, og gerir það vel. Það sama gildir um Matvís og Sjómannasambandið. Önnur sambönd eru í raun og veru ekki nein landssambönd og þetta þýðir í raun og veru að ASI, sem samband landssambanda, getur aldrei orðið mjög sterkt þar sem umþoð frá landssamböndum sem eru svo veik koma ekki að miklu gagni, valdið er eftir sem áður hjá félög- unum. Það hafa margir - þar á meðal ég - verið á þeirri skoðun að það eigi að taka landssamböndin út úr skipulaginu og gera Al- þýðusambandið að sambandi aðildarfélaganna. Það yrði fljótlega samband miklu færri félaga en nú því félögin eru í óða önn að sameinast og sú þróun yrði hraðari. Þessar hugmyndir minar hafa ekki verið samþykktar heldur talið rétt að halda áfram þvi „En við vitum að meira en helmingur þjóðarinnar hefur hreint enga skoðun á ASÍ, hvorki já- kvæða né neikvæða. Það er ekki gott fyrir stærstu samtök launafólks á íslandi að fólk hafi enga skoðun á þeim.“ 74
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.