Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 78
Greinarhöfundur, Eyþór Eðvarðsson, er með M.A. í vinnusálfræði og starfar sem stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarsmiðjunni, sem er
hluti af IMG-hóþnum. Þekkingarsmiðjan stendur fyrir ráðstefnu um tilfinningagreind á nœstunni. FV-Myndir: Geir Olafsson
Að stjórna eigin
tilfinnlngum
Allt frá því að bók Daníels
Goleman um tilfmningagreind
kom út í Bandaríkjunum árið
1995 hefur umræðan um hlutverk
tilfinninga í árangri aukist. I nýjustu
bók sinni Working With Emotional
Intelligence tekur Goleman fyrir ár-
angur fólks í starfi. Rannsóknir hans
á frammistöðu framúrskarandi
starfsmanna í 181 starfi í alls 121 fyr-
irtæki leiddu í ljós að tilfmninga-
greind skýrir um 70% af frammi-
stöðu þeirra. Fagleg geta og vitsmunagreind til samans virð-
ast ekki skýra meira en um 30% af þeim mun sem er á milli
framúrskarandi einstaklinga og þeirra sem standa sig ekki
eins vel. I stjórnunarstörfum skýrir tilfmningagreind allt að
90% af frammistöðu í starfi.
Munur á framúrskarandi einstaklingi og meðalframmi-
stöðu í einstaka störfum er meira en
1000%. í einföldum störfum skila
bestu einstaklingarnir frammistöðu á
við þrjá. í meðalflóknum störfum
skila bestu einstaklingarnir frammi-
stöðu á við 12 af þeim sem standa sig
hvað lakast. I mjög flóknum störfum,
eins og t.d. læknisfræði, skila toppein-
staklingar að meðaltali 127% betri ár-
angri en þeir með meðalframmistöðu.
Ef skoðuð eru einstök störf, eins og
t.d. forritun, sýna rannsóknir að bestu
10% forritaranna sýna að meðaltali 320% betri frammistöðu en
meðalforritarar. í einni rannsókn, þar sem 1% allra bestu for-
ritaranna voru bornir saman við meðalforritara, skiluðu þeir
1.272% betri frammistöðu! Það athyglisverða er að það er ekki
hæfni í forritun sem greinir súperstjörnurnar frá hinum held-
ur samstarfshæfni. Þeir bestu vinna gjarnan lengur til að að-
Hæfni í mannlegum samskiptum
gerir gæfumuninn hjá peim sem ná
árangri. Rannsóknir á frammistöðu
framúrskarandi starfsmanna leiða í
Ijós að tilfinningagreind skýrir um
70% afframmistöðu peirra.
Eftir Eyþór Eðvarðsson Myndir: Geir Olafsson
78