Frjáls verslun - 01.02.2001, Síða 90
Greinarhöfundur, Þór Ciausen, er skrifstofu-
stjóri Opinna kerfa, og skrifaði þessa grein
nýlega í meistaranámi sínu í fjármálum við
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands.
A að kaupa eða leigja?
Rekstrarleiga á tölvubúnaði er ætl-
uð fyrirtækjum og stofnunum
sem ekki vilja binda of mikið
rekstrarfé í tölvubúnaði. Tilgangur
hennar er meðal annars að mæta sveifl-
um í greiðslustreymi viðkomandi fyrir-
tækis. Kostirnir við þetta leiguform eru
margir og því má leiða likum að þvi að
rekstrarleiga á tölvubúnaði, sem flestöll
íslensku tölvufyrirtækin hófu að bjóða
fyrirtækjum upp á fyrir nokkrum árum
og vaxið hefur hröðum skrefum síðan, muni stóraukast á næstu
árum. Tekið skal fram að rekstrarleiga er ekki það sama og kerf-
isleiga, sem mjög hefur verið til umræðu. Kerfisleiga felur það í
sér að eitthvert fyrirtæki fær utanaðkomandi tölvufyrirtæki til að
annast tölvumálin fyrir sig að fullu.
Hröð úrelding Tölvubúnaður úreldist hratt og afskrifast nánast að
fullu á þremur árum. Því er ljóst að búnaðurinn verður mjög verð-
lítill á skömmum tírna, en samt sem áður getur þetta verið stór út-
gjaldaiiður í fyrirtækjum þar sem hver starfsmaður þarf að nota
tölvubúnað við vinnu sína. Ef við gefum okkur að ein starfestöð með
tölvu kosti að jafnaði um 170 þús. krónur þá þarf fyrirtæki, sem er
með 70 starfsmenn, að ijárfesta í tölvubúnaði fyrir að lágmarki um
13 milljónir króna sem síðan er að mestu verðlaus að þremur árum
liðnum. Sömuleiðis hefur tækninni þá örugglega fleygt fram þannig
að fjárfestingin reynist mjög dýr miðað við líftíma hennar.
Rekstrarleiga tryggir að... Stefna flestra fyrirtækja hlýtur að vera
að áætla sem nákvæmast rauntölur gjalda- og tekjustreymi fram-
tíðar. Ef tölvubúnaður er keyptur þarf að nota til þess Jjármagn úr
rekstrinum sem annars mætti eflaust festa í öðru sem er tekju-
skapandi. Með því að endurtjármagna búnaðinn er hægt að bæta
lausaijárstöðu og leggja grunninn að raunhæfari áætlanagerð
rekstrarreiknings.
Ferli rekstrarleigu Enhvernigerrekstr-
arleigu á tölvubúnaði háttað? í grundvail-
aratriðum er ferli rekstrarleigu þannig
háttað að leigusali flárfestir í tilgreindum
tölvubúnaði að beiðni leigutaka og leigir
honum síðan búnaðinn samkvæmt
samningi þeirra á milli. Tölvufyrirtæki er-
lendis hafa séð sér hag í því að gerast
leigusalar á tölvubúnaði og þjónustu
tengdri honum og má netha að bæði
IBM og Hewlett Packard eru umfangs-
mikil á þessu sviði. Fyrirtæki eins og Tæknival, Nýheiji, EJS og
Opin kerfi bjóða þessa þjónustu og eru Opin kerfi til dæmis í sam-
starfi við sérstaka deild innan Hewlett Packard í Danmörku, sem
heitir HP Finance. Þar er tilvonandi leigutaki fyrst skoðaður með til-
liti til flárhagsstöðu. Lánshæfið ákvarðast þá fyrst og fremst af
rekstrarafkomu, eiginfjárstöðu og viðskiptasögu. Ef tilvonandi
leigutaki stenst þá skoðun er gerður samningur á milli leigusala og
leigutaka Leigusaii kaupir viðkomandi tölvubúnað af seljanda og
þar með er leigusaii orðinn eigandi búnaðarins. Hann leigir síðan
leigutaka búnaðinn sem greiðir leigu samkvæmt samningi.
Leigugreiðslurnar Að skrifa undir rekstrarleigusamning felur í
sér að leigutaki samþykkir að greiða fasta upphæð mánaðarlega.
Ef rekstrarleigufyrirtækið er erlendis, eins og í tilfelli HP Finance,
er ljóst að leigureikningar berast leigutaka í erlendri mynt Þá er
nauðsynlegt að taka tillit til tveggja þátta. Annars vegar að leigu-
taki ber gengisáhættuna, sem myndast frá því að leigureikningur
er gefinn út og þar til hann er greiddur, en hún getur verið jákvæð
eða neikvæð, háð stöðu viðkomandi gjaldmiðils gagnvart íslensku
krónunni frá undirritun samnings og þar til inna á af hendi leigu-
greiðslurnar. Hins vegar þurfa leigureikningarnir sem berast
leigutaka að vera með virðisaukaskatti. Þó svo leigusali sé erlend-
ur þá er búnaðurinn leigður hérlendis og líta skattayfirvöld þannig
á málið að um viðskipti innanlands sé að ræða. Leigusali greiðir
Rekstrarleiga á tölvubúnaði hefur
vaxið hröðum skrefum á undanförn-
um árum og mun án efa færast enn
í aukana á næstu árum. En hvað er
svona hentugt við að leigja tölvur?
Eftir Þór Clausen Myndir: Geir Olafsson
90