Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 92
GLERAUGNATÍSKAN
Gleraugu að slækka aftur
Um nokkurt skeið hafa gleraugu
verið að minnka en nú virðist sú
þróun vera að snúast við. Anna F.
Guðmundsdóttir úditshönnuður, sem
betur er þekkt sem Anna og útlitið,
veitir fólki aðstoð við val á gleraugum,
jafahliða þeirri ráðgjöf sem hún veitir
við fataval og annað sem snýr að útliti
fólks. „Þegar maður er að hugsa um
viðskipti skiptir mestu máli að hafa
hlutina sem einfaldasta," segir Anna.
„Það á ekki síst við um gleraugu,
því áberandi og skrautleg gleraugu, henta ekki þeim sem vilja
láta taka mark á sér í viðskiptalifinu. Auðvitað ræður smekkur
hvers og eins einnig, en nokkur grundvallaratriði eru mikilvæg
við val gleraugna. Fyrst og fremst þarf að taka tillit
til þess hvernig andlit viðkomandi
hefur; hvort það er kantað,
kringluleitt, langt eða
stutt. Hvort hann
er með skegg,
hávaxinn, lág-
vaxinn, þrek-
inn eða grann-
ur. Allt hefur
þetta áhrif á valið.
Þegar ég fæ til mín
fólk mynda ég mér skoðun á
því um leið og ég sé það, því það er nú
einu sinni svo að fyrstu augnablikin
eru mikilvægust þegar fólk hittist.
Það gefst aldrei annað tækifæri til að
mynda þessi fyrstu tengsl og
miklu máli skiptir að þau séu
góð.“
Litur í glerinu
Anna segir það
rétt að gleraugu
séu heldur að
stækka aftur.
„Þó ekki þannig
að þau séu orðin
risastór. Umgjarð-
irnar, sem voru
mjög einfaldar og jafn-
vel næstum því ósýnilegar í
fyrra, eru nú að verða sýnilegri
og meira áberandi. Nokkuð
ber á því að notaður sé litaður
málmur með glansáferð og lit-
irnir eru stundum skærir. Glerin eru
líka lituð, mest efst en liturinn dofnar
eftir því sem neðar dregur. Það mýkir
áhrifin af birtunni og mörgum þykir
þetta mjög þægilegt. Umgjarðirnar
eru líka víðari, standa jafnvel dálítið út
á við, nokkurs konar „Britney Spears
áhrifen það er mjög þægilegt því þá
er ekki hætta á að þær myndi far í
gagnaugun, eins og er svo algengt.
Gleraugu þurfa nefnilega að passa á
höfuð viðkomandi, þau mega ekki
vera of lítil þannig að þau þrengi að, það veldur aðeins álagi og
óþarfa höfúðverk og engin ástæða er til að kaupa of lítil gler-
augu fremur en of litla skó.“
Augabrúnir skipta miklu máli þegar umgjarðir
eru valdar. „Sá sem er með boga-
dregnar augabrúnir ætti
ekki að velja sér könt-
uð gleraugu,"
segir Anna.
„Arangurinn
af því yrði ein-
faldlega sá að
viðkomandi virt-
ist undrandi á svip-
inn allan daginn. Efri
brúnin á gleraugunum verður
að vera samsíða augabrúnunum og
þær verða að sjást en ekki mynda
rönd fyrir ofan eða neðan brúnina svo
að sá sem gleraugun ber líti út fyrir að
vera með tvær línur þvert yfir and-
litið.
Eg skipti andfitinu í
tvennt, efra og neðra
andlit Ef neðra and-
litiðerstuttþarfað
hafa bogamynd-
aðalínuenefþað
erlangtþarf hún
að vera bein til að
stytta andlitið.
Nefið tengir saman
efra og neðra andlitið
og þess þarf að gæta að
línan sé í samræmi við það. Ef
nefið er langt er gott að hafa nef-
sfykkið þvert en ef það er stutt er
betra að hafa bogadregna linu í
nefstykkinu.
Gleraugu eru hluti af persónuleika
fólks og oft það sem fyrst er tekið
eftir. Það skiptir talsverðu máli að
velja pau vel, að pau passi viðkom-
andi ogpví sem hann er að fást við
hverju sinni.
Eftir Vigdísi Steíansdóttur
Þessar svörtu spangirfrá Go eru fíngerðar og gler-
augun eru góð til alhliða notkunar.
Bláu plastgleraugun eru það sem Anna kallar „hönnunargler-
augu “ og vísar til þess að hönnuðir og þeir sem skapa eru gjarnat
með meira áberandi gleraugu en aðrir.
92
Augabrúnir skipta miklu máli þegar umgjarðir eru valdar. „Sá, sem er með bogadregnar
augabrúnir, ætti ekki að velja sér köntuð gleraugu,“ segir Anna.