Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 96
Sigurður Oli Sigurðsson og Erla Magnúsdóttir, eigendur EgC verslananna.
Umgjörðin setur svipinn
Gleraugnaverslunin ÉgC er á þrem
stöðum á höfuðborgarsvæðinu:
Laugavegi 61, Hamraborg 10 og
Smáratorgi. Þar ráða húsum þau Sig-
urður Oli Sigurðsson og Erla Magnús-
dóttir en þau opnuðu fyrstu verslunina
árið 1996 og komu með nýjar hug-
myndir og nýja strauma til landsins.
Þau eru bæði sjóntækjafræðingar að
mennt, lærðu í Heidelberg í Þýskalandi.
„Það sem nú er efst á baugi er að umgjarðirnar eru aðeins
að stækka og verða efnismeiri og litirnir eru meira afger-
andi,“ segir Sigurður Oli. „Það eru líka komnir litir í glerin, lit-
ir sem gera að verkum að birtan verður mun þægilegri fyrir
notandann. Litirnir sem við notum eru bleikrauður litur, kan-
ellitur og allt út í grængráa kaktusliti og að sjálfsögðu brúnir
og gráir litir. Sú litun sem við mælum með og látum gera fyr-
ir viðskiptavini okkar hefur heppnast verulega vel og gerir
heildarsvip gleraugnanna skemmtilegri. Sterkir litír í um-
gjörðum verða æ vinsælli og það færist í vöxt að fólk láti út-
búa glerin í sólgleraugunum í samræmi við sjónina."
Heppilegur fylgihlutur Sigurður segir gleraugnatískuna ijöl-
breytta og að í vaxandi mæli líti fólk á gleraugu sem einn af
fylgihlutunum við fatnaðinn. Eigi jafnvel 2-4 gleraugu sem
það skipti um reglulega og notí í samræmi við tilefni. „Þegar
ég var að ljúka námi í Þýskalandi var tal-
að um að Evrópubúar skiptu um gler-
augu á 4-5 ára fresti,“ segir hann. „Hér á
landi skiptír fólk hins vegar um gler-
augu á um það bil tveggja tíl þriggja ára
fresti, að því er mér sýnist.
Það hefur færst í vöxt að fólk kaupi
sér sérstök skrifstofugleraugu og segist
Sigurður gjarnan mæla með þeim þegar
keypt séu lesgleraugu. „Þau eru á svipuðu verði og lesgler-
augun en nýtast miklu betur í skrifstofuvinnuna þar sem fók-
usinn nær yfir stærri flöt og gerir fólki fært að lesa og horfa
á skjáinn og nánasta umhverfi. Þau eru tvískipt en þetta eru
ekki gleraugu sem hægt er að nota við akstur enda eingöngu
ætluð til nota á skrifstofunni."
flllt á einum stað Flestir íslenskir sjóntækjafræðingar hafa
tíl þess próf og kunnáttu að mæla sjón fólks og segir Sigurð-
ur það slæmt að geta ekki notað sér kunnáttuna hér á landi.
„Erlenda heitið á þessari starfsgrein er „Optometrist“,“ segir
hann. „Erlendis, eins og flestir þekkja, er hægt að fá sjón
mælda í gleraugnaverslunum og þar með afgreiða allan feril-
inn á einum stað. Það er slæmt að horfa upp á fólk sem er að
koma heim eftir margra ára nám, sérmenntað í sjónmæling-
um, og sjá þeim settar skorður í atvinnugrein sinni vegna sér-
hagsmuna annarra,“ segir Sigurður Óli að lokum.S!]
Með tilkomu nýrrar kynslóðar
sjóntækjafræðinga hefur verslun-
um sem sérhæfa sig í sölu gler-
augna ffólgað mjög.
Eflir Vigdísi Stefánsdóttur
96
„Þegar ég var að Ijúka námi í Þýskalandi var talað um að Evrópubúar skiptu
um gleraugu á 4-5 ára fresti,“ segir Sigurður Óli.