Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 103
„Ég held að uþþlýsingatœknin sé undirstaða góðs og framscekins markaðsstarfs. Alls konar tölvukerfi, sem gera mönnum kleift að vita sem mest
um markaðinn, viðskiþtavini og samkeþþni, erþað sem koma skal,“ segir Anna Guðný Aradóttir, markaðsstjóri Samskiþa.
Mynd: Geir Olafsson
Anna Guðný Aradóttir, Samskipum
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Anna Guðný Aradóttir hef-
ur starfað hjá Samskip-
um í tæp fimm ár. Fyrstu
Ijögur árin var hún deildar-
stjóri innanlandsdeildar og var
staðsett á skrifstofu iyrirtæk-
isins í Skútuvogi. Hún tók við
starfi markaðsstjóra 1. nóvem-
ber sl. en hefur verið viðloð-
andi markaðsmálin frá því í
fyrrasumar. Markaðsdeildin
er hluti af sölu- og markaðs-
sviði hjá Samskipum og eru
starfsmenn þar um 40 talsins
en þær eru þrjár sem sinna
markaðsstarfinu. „Þetta er
mjög skemmtilegt starf. Sam-
skip er ungt og ferskt fyrir-
tæki, stjórnunarhættir eru nú-
timalegir og fagleg vinnu-
brögð eru í fyrirrúmi. Hér er
mikið af skemmtilegu og
góðu fólki. Atvinnugreinin er í
mikilli þróun og það er alltaf
gaman að taka þátt í slíku,“
segir hún.
Segja má að Anna Guðný
sé sprottin úr ferðaþjónust-
unni hvað starfsreynslu
snertir en hún hefur einkum
starfað að sölu- og markaðs-
málum síðustu árin. Hún hóf
starfsferil sinn hjá Flugleið-
um í Bandaríkjunum og starf-
aði hjá fyrirtækinu í rúm átta
ár en tók svo við starfi for-
stjóra hjá ferðaskrifstofunni
Útsýn, sem síðar varð Úrval-
Útsýn, eins og kunnugt er.
Hjá Útsýn hafði Anna Guðný
stutt stopp, eftir níu mánaða
dvöl lá leiðin til Stöðvar 2 þar
sem hún starfaði að markaðs-
málum í sex ár. „Sölu- og
markaðsmálin eru lífleg og
fjölbreytt; mikill erill og mikið
að gerast en það á vel við
mig,“ segir Anna Guðný.
Það hefur mikið verið að
gerast í sölu- og markaðsmál-
unum síðustu ár og telur Anna
Guðný að tæknin hafi þar
komið skemmtilega að mál-
um. „Markaðsfólk tekur tölvu-
tæknina stöðugt meira í þjón-
ustu sína og upplýsingatæknin
aknennt verður æ mikilvægari
þáttur í markaðsstarfinu. Það
er spennandi og gaman að
fýlgjast með og taka þátt í því.
Ég tel að upplýsingatæknin sé
undirstaða góðs og framsæk-
ins markaðsstarfs. Alls konar
kerfi, sem gera mönnum kleift
að vita sem mest um markað-
inn, viðskiptavini og sam-
keppnina, er það sem koma
skal. Ymsir greiningarmögu-
leikar hafa opnast. Við hjá
Samskipum rekum þróunar-
deild sem heldur okkur vel
upplýstum og við reynum að
vera alltaf með það nýjasta á
hveijum tíma,“ segir hún.
Anna Guðný er fædd og
uppalin á Akureyri, lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri vorið 1976 og
á því 25 ára stúdentsafmæli í
vor. Hún lærði sálarfræði við
Háskóla Islands en fluttist
svo til Bandaríkjanna og bjó
þar í fjögur ár á meðan eigin-
maður hennar, Asgeir Stein-
grímsson, var þar í fram-
haldsnámi. Hann er nú fyrsti
trompetleikari Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands. Þau hjón eiga
tvær dætur, 21 og 14 ára.
Anna Guðný lauk rekstrar- og
viðskiptanámi frá Endur-
menntunarstofnun Háskóla
Islands fýrir fimm árum. „Það
er mjög skemmtilegt og hag-
nýtt nám,“ segir hún og
kveðst gera mikið af því að
sækja námskeið og ráðstefn-
ur til að halda sér við og fýlgj-
ast með. „Það er mjög mikil-
vægt,“ segir hún.
Vinahópurinn er stór og
áhugamálin eru margvísleg.
,Auðvitað fylgjumst við með
tónlist en sameiginlegt aðalá-
hugamál okkar hjóna er
stangveiði. Hún er í miklu
uppáhaldi, kannski meira hjá
manninum mínum en mér, en
við stundum hana bæði. Ég
held líka alltaf sambandi við
mína gömlu vinnufélaga á
Stöð 2. Við erum nokkrar í
veiðihóp saman og förum
alltaf einu sinni á ári saman í
veiðitúr. Við höfum verið
vanafastar og höfum hingað
til alltaf farið í Hítará. Ég er
dugleg að koma mér í alls
konar félög og klúbba og svo
finnst mér óskaplega gaman í
vinnunni,“ segir Anna Guðný
að lokum. S!]
103