Morgunn - 01.06.1987, Page 21
Grundvallaratriðið að yfirgefa herbergi er mjög ólíkt því
grundvallaratriði að yfirgefa líkama, því sálin er ekki flíkaman-
um á sama hátt og líkaminn er í herbergi. Sennilega breyta sálir
ekki um staðsetningu í efninu þegar þær yfirgefa líkama, því
þær hafa enga efnislega staðsetningu í þessum heimi áður en
þær yfirgefa líkama. Þetta er ekki eins og yfirgefa Detroit og
ferðast til New York, þ. e. þær ferðast ekki milli staða. Sálin er
ekki í Detroit þegar líkamin er þar. Þar sem maður getur alls
ekki séð sálina hvernig gæti rannsakandi vonast til þess að geta
rakið ferill sálar frá einum líkama til staðar utan hans. Ef sálir
eru einstakar og aðeins aðgengilegar þeim sjálfum, þá getur
engin séð annars sál. Eigum við nú að reyna aðra nálgun. Eig-
um við nú að spyrja sálina hvort hún hafi yfirgefið þennan lík-
ama eða ekki? Til að auðvelda henni svarið gætum við sagt.
„Þetta er allt í lagi! Vertu ekki óróleg. Getur þú munað hver þú
varst fyrir stuttu? Þessi nálgun mun auðsýnilega ekki hjálpa
henni ef fyrir einhverja sakir hún hefur verið losuð við allan
persónulegar minningar við brottför úr líkamanum.
Þar sem álitið er að þegar gengið er undir sálnaflutning
(endurfæðingu) missi sálin allar persónulegar minningar.
Það myndi ekki hjálpa ef fyrir einhverja ástæðu sálin væri
hreinlega rugluð, t. d. vegna þess að allar minningar úr öllum
fyrri lífum rifjast upp í einu og hún gæti hreinlega ekki munað
hver var síðust. Sálin gæti verið rugluð vegna of margra minn-
inga sem og of fárra. Gerum ráð fyrir að henni minni að hún
hafi verið hetja með þúsund andlit? eða var hún hetja með níu
hundrað níutíu og níu andlit?
Gæti þúsundasta andlitið aðeins verið (sýndar) gerfi minning-
ar? Myndi hún velta því fyrir sér hvort hún hafi raunverulega
verið Hrói Höttur eða hvort hún rugli einhverju sem hún hafði
lesið saman við það sem hún hafi upp lifað? Hvaða andlit hafði
hún síðast. Eru öll þúsund andlitin ímynduð? Þessi möguleiki á
sýndarminningu gefur smá hvíld? Hvernig getur nokkur vitað
hvort það sem er talin vera minning sé raunveruleg minning eða
ímyndum. Ef við gerum ráð fyrir að þetta sé raunveruleg minn-
ing er einnig að gera ráð fyrir að sálin sé persónan sem upplifði
þessa athöfn eða var þessi persóna í minningunum. Þannig er
morgunn
19